Rekinn fyrir að breyta skólanum í gagnaver Stefán Ó. Jónsson skrifar 9. nóvember 2018 15:53 Tölvurnar voru svo háværar og netfrekar að það var farið að hafa áhrif á kennslu, að sögn nemenda og starfsfólks. Weibo
Skólastjóri í Kína hefur verið rekinn eftir að upp komst að hann hafði falið fjölda tölva í skólabyggingunni sem notaðar voru til að grafa eftir rafmyntum. Starfsfólk og nemendur við skólann höfðu lengi kvartað undan miklu suði sem heyra mátti í skólanum, jafnt daga sem nætur. Þegar loksins var orðið við beiðni þeirra um rannsókn á suðinu komu tölvurnar í ljós. Skólastjórinn hafði komið tölvunum fyrir í skólanum svo að hann þyrfti ekki sjálfur að standa straum af rafmagnsreikningunum sem rafmyntavinnslunni fylgdi, en að sögn breska ríkissútvarpsins hljóðaði reikningurinn upp á rúmlega 250 þúsund krónur. Fjármálastjóri skólans hafði bent skólastjóranum, Lei Hua, á þessi óvæntu útgjöld. Skólastjórinn blés hins vegar á áhyggjur fjármálastjórans og sagði að rafmagnsreikninginn mætti skrifa á loftræstinguna og rafmagnsdrifið hitakerfi skólans. Alls var níu tölvum komið fyrir í skólanum frá því um mitt ár 2017 og fram til síðastliðins sumars. Skólastjórinn er sagður hafa keypt sér eina tölvu í fyrra sem hann ætlaði að nota til að grafa eftir rafmyntum heima hjá sér - en snerist fljótlega hugur þegar hann sá hvað rafmagnsreikningur heimilsins var orðinn hár. Þá hafi hann ákveðið að flytja tölvuna í skólann og láta hann borga rafmagnsbrúsann. Þarlendir miðlar segja að álagið á tölvu- og rafmagnskerfi skólans hafi verið orðið slíkt að það var farið að hafa áhrif á kennsluna. Sérfræðingur í rafmyntagreftri segir að níu tölvur sem keyrðar eru áfram daga og nætur hafi þar að auki án efa framkallað mikinn hita og hávaða. Það sé ekki beint til þess fallið að auka vinnufrið.
Rafmyntir Kína Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira