Kerecis er handhafi Nýsköpunarverðlauna Íslands 2018 Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 30. október 2018 18:30 Starfsfólk Kerecis veitti verðlaununum viðtöku á Nýsköpunarþingi 2018 í dag. Vísir
Fyrirtækið Kerecis er handhafi Nýsköpunarverðlauna Íslands 2018 sem afhent voru á Nýsköpunarþingi sem fram fór á Grand hótel í dag. Kerecis þróar vörur sem tengjast húð- og vefjaviðgerðum úr náttúrulegum efnum, meðal annars úr þorskroði. Fyrirtækið hefur einkaleyfi í yfir 50 löndum og hjá því starfa yfir 50 manns. Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars að Kerecis hafi þróað „framúrskarandi afurð sem hafi alla burð til að ná árangri á markaði á næstu árum.“ Þá hafi fyrirtækið fengið fjölda viðurkenninga á undanförnum árum, meðal Vaxtarsprota ársins 2017 sem það nýsköpunarfyrirtæki sem óx hraðast á Íslandi. „Samhliða aukinni markaðssetningu hefur störfum hjá fyrirtækinu fjölgað hratt og þar starfa núna yfir 50 manns við þróun, framleiðslu og sölu,“ segir ennfremur í rökstuðningi dómnefndar. Höfuðstöðvar fyrirtækisins og framleiðsla eru á Ísafirði en það hóf rekstur fyrir átta árum. Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis veitti verðlaununum viðtöku úr hendi Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur, ráðherra ferðamála-, iðnaðar-, og nýsköpunar. Verðlaunagripurinn í ár er stytta af frjósemisgoðinu Frey eftir myndhöggvarann Hallstein Sigurðsson.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira