Chelsea lenti í engum vandræðum með Bate Borisov á heimavelli í Evrópudeildinni í kvöld en enska stórliðið vann öruggan 3-1 sigur.
Staðan var 2-0 fyrir Chelsea eftir átta mínútur. Ruben Loftus-Cheek kom Chelsea yfir á annarri mínútu og hann skoraði einnig annað mark Chelsea.
Loftus-Cheek var ekki hættur því hann fullkomnaði þrennuna á 54. mínútu en Aleksey Rios minnkaði muninn fyrir gestina áður en yfir lauk.
Chelsea er með níu stig eftir fyrstu þrjá leikina en Bate, PAOK og Vidi eru með þrjú sig í öðru til fjórða sæti riðilsins.
Arnór Ingvi Traustason spilaði allan leikinn er Malmö gerði 1-1 jafntefli við Sarpsborg í I-riðlinum. Sarpsborg jafnaði metin er þrjár mínútur voru eftir.
Malmö er með fjögur stig í þriðja sætinu en Sarpsborg er í öðru sætinu á betri markatöl. Genk er á toppnum með sex stig en Besiktas á botninum með þrjú.
Jón Guðni Fjóluson var ónotaður varamaður er Krasnodar tapaði 2-1 fyrir Standard Liege á útivelli. Krasnodar, Sevilla og Standard eru með sex stig í riðlinum en Akhisarspor á botninum án stiga.
Úrslit síðari leikja dagsins:
G-riðill:
Rangers - Spartak Moskva 0-0
Villareal - Rapid Wien 5-0
H-riðill:
Eintracht Frankfurt - Apollon Limassol 2-0
Marseille - Lazio 1-3
I-riðill:
Besiktas - Genk 2-4
Sarpsborg - Malmö 1-1
J-riðill:
Sevilla - Akhisarspor 6-0
Standard Liege - Krasnodar 2-1
K-riðill:
Jablonec - Astana 1-1
Rennes - Dynamo Kyiv 1-2
L-riðill:
Chelsea - Bate 3-1
PAOK - Vidi 0-2
Loftus-Cheek afgreiddi Bate með þrennu en jafntefli hjá Arnóri
