Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu sjómannafélaganna tveggja en þar segir að í fréttum undanfarna daga hafi komið fram mjög alvarlegar ásakanir á hendur stjórnendum Sjómannafélags Íslands um óheiðarlega framkomu og falsanir á fundargerðabókum sjómannafélagsins.
„Ásakanir þessar hafa komið fram í tengslum við fyrirhugað mótframboð til stjórnar félagsins í tengslum við aðalfund þess sem fram fer á milli jóla og nýárs. Þessar ásakanir telja stjórnendur ofangreindra félaga svo alvarlegar að við því verði að bregðast,“ segir í yfirlýsingunni frá sjómannafélögunum tveimur.
Vísir hefur fjallað um ólgu innan Sjómannafélags Íslands sem tengist framboði sjómannsins Heiðveigar Maríu Einarsdóttur til formanns stjórnar félagsins. Sitjandi formaður Jónas Garðarsson hefur gefið út að hann muni ekki gefa kost á sér.
Heiðveig María hefur gagnrýnt félagið harðlega fyrir skort á upplýsingagjöf sem og það að nýlega hafi verið sett fram tilkynning á vef félagsins sem í raun kemur í veg fyrir framboð hennar; þeir einir eru kjörgengir sem greitt hafa félagsgjöld í þrjú ár.
![](https://www.visir.is/i/B172FA6D5A42D430FC0EBD3ACD52EAF39773BC1B3B88340988FA8F5CB448E0D9_713x0.jpg)
Jónas mun sitja út árið 2019 sem formaður en þá mun nýr formaður og ný stjórn taka við sem verður kosin í desember.
Jónas leiddi sameiningarviðræður sjómannafélaganna til að fá aukinn slagkraft í kjara- og réttindabaráttu stéttarinnar. Gangi þær viðræður eftir mun ný stjórn Sjómannafélags Íslands ekki taka við, því kjósa þarf um nýja stjórn sameinuðu félaganna.
Stjórn Sjómannafélagsins hefur gefið út yfirlýsingu þar sem hún segist harma alvarlegar ásakanir í garð félagsins og er Heiðveig María sögð vega að æru félagsins og allra þeirra sem koma að rekstri og stjórn félagsins.