Skýrsla FBI virðist engu ætla að breyta

Þrjár konur hafa sakað Kavanaugh um kynferðisárás og alvarlegasta ásökunin kemur án efa frá Christine Blasey Ford, sem sakar Kavanaugh um að hafa reynt að nauðga sér þegar þau voru unglingar.
Dianne Feinstein, æðsti Demókratinn í dómsmálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings, segir það eftirtektarverðasta við skýrslu FBI vera það sem ekki sé í henni. Svo virðist sem að skýrslan og rannsóknin sé ókláruð. Þá gaf hún í skyn að Hvíta húsið hefði takmarkað rannsóknina til að vernda Kavanaugh.
Hún kvartaði yfir því að rannsakendur FBI hefðu hvorki rætt við Kavanaugh sjálfan né Ford.
Repúblikanar segja ekkert nýtt koma fram í skýrslunni sem bendi til þess að Kavanaugh hafi brotið á konunum.
Þrjú atkvæði skipta máli
Það skiptir þó í rauninni ekki miklu máli hvað flestir þingmenn segja um skýrsluna og ljóst er að flestir þeirra hafa þegar ákveðið sig hvort þau muni greiða atkvæði með tilnefningu Kavanaugh.
Tveir af þeim þremur þingmönnum Repúblikanaflokksins sem hafa lýst yfir óákveðni með tilnefningu Kavanaugh hafa nú lýst yfir ánægju með skýrsluna. Jeff Flake, þingmaðurinn sem krafðist þess að rannsóknin færi fram, segir ekkert hafa komið fram sem styðji ásakanirnar gegn Kavanaugh. Susan Collins sló á svipaða strengi og þykir því einkar líklegt að meirihluti þingmanna öldungadeildarinnar styðji tilnefningu Kavanaugh.
Kosið verður um tilnefninguna á morgun og svo aftur á laugardaginn. Repúblikanar eru með mjög nauman meirihluta, 51-49. Verði jafnt mun Mike Pence, varaforseti, ráða úrslitum, þannig að ef tveir þingmenn veita Kavanaugh ekki atkvæði sitt verður hann ekki tilnefndur.
Demókratar hafa kallað eftir því að skýrslan verði opinberuð og enn sem komið er hafa þingmenn ekki geta farið nánar út í deilurnar. Til að lesa skýrsluna hafa þeir þurft að skrá sig niður á sérstakan tíma og hefur þeim verði fylgt inn í sérstakt herbergi til lestursins. Hingað til hafa bakgrunnsskýrslur um tilnefnda aðila verið trúnaðarmál.
Repúblikanar segja skýrsluna hreinsa Kavanaugh af ásökununum. Demókratar segja rannsóknina ókláraða og skýrslan er leyndarmál. Svo virðist sem að ekkert muni breytast án þess að hún verði gerð opinber.
Snýst ekki bara um meint kynferðisbrot
Gagnrýni Demókrata hefur ekki eingöngu snúið að áðurnefndum ásökunum gegn Kavanaugh. Hún hefur einnig snúist að ummælum hans á fundi dómsmálanefndarinnar í síðustu viku.
Sjá einnig: Ætlar ekki að láta „þvinga sig“ til að hætta
Kavanaugh hefur verið sakaður um að segja þingmönnum ósatt um drykkju sína á árum áður og sömuleiðis hefur hafa Demókratar sett út á skapgerð hans. Einn þeirra sem segir Kavanaugh hafa logið að þingmönnum er herbergisfélagi hans í háskóla.
Jamie Roche segir dómarann hafa logið „án þess að hika“ og Kavanaugh hafi verið mikill drykkjuhrútur.
„Ég umgekkst Brett ekki en þar sem ég deildi svefnherbergi með honum, sá ég hann koma heim og ég sá hann á morgnanna,“ sagði Roche í sjónvarpsviðtali í gær. Roche sagði Kavanaugh oft hafa verið verulega drukkinn og hann hefði oft ælt vegna drykkju.
Roche sagði FBI ekki hafa rætt við sig.
Tengdar fréttir

Bréf dómaraefnisins gefur innsýn í drykkjuskap á námsárunum
Brett Kavanaugh, hæstaréttardómaraefni Trump Bandaríkjaforseti, hefur gert lítið úr drykkju sinni á námsárunum. Í bréfi sem hann skrifaði á þeim tími lýsti hann þó vinahóp sínum sem „háværum og óþolandi fyllibyttum“.

„Þetta mun hafa afleiðingar 40 ár fram í tímann“
Á sínu fyrsta kjörtímabili gæti Trump tilnefnt allt að 30 prósent allra alríkisdómara í Bandaríkjunum.

Trump hæddist að vitnisburði Blasey Ford
Blasey Ford kom fyrir dómsmálanefndina í síðustu viku og bar þar vitni vegna ásakana sem hún hefur sett fram á hendur Brett Kavanaugh, sem Trump hefur tilnefnt í Hæstarétt Bandaríkjanna.

Bandaríkjaforseti segir „ógnvekjandi“ að vera ungur karl
Donald Trump telur að ungir karlmenn eigi undir högg að sækja vegna þess að þeir geti verið sakaðir um kynferðisbrot.

Keppast við að skipa dómara fyrir kosningar
Repúblikanar keppast nú við að skipa íhaldssama menn í ævistörf alríkisdómara í Bandaríkjunum ef þeir skyldu missa tökin í öldungadeildinni í nóvember.

Repúblikanar uggandi yfir komandi kosningum
Demókratar hafa sótt á frambjóðendur Repúblikana víða um landið og óvinsældir Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, hafa færst í aukana.