Aron lék í sigri á Evrópumeisturunum | Margir gerðu það gott í Meistaradeildinni Anton Ingi Leifsson skrifar 6. október 2018 17:10 Aron í leik með Barcelona. vísir/getty
Aron Pálmarsson skoraði tvö mörk er Barcelona vann átta marka sigur á Montpellier, 35-27, í Meistaradeild Evrópu í handbolta í dag. Montpellier eru ríkjandi Evrópumeistararar svo ris sigur hjá Aroni og félögum en þeir voru fimm mörkum yfir í hálfleik, 18-13. Barcelona er með sex stig eftir fyrstu fjóra leikina í riðlinum en Montpellier í vandræðum - með fjögur töp í fyrstu fjórum leikjunum. Alexander Petersson skoraði sjö mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen og Guðjón Valur Sigurðsson sex er Rhein-Neckar Löwen tapaði fyrir HC Vardar, 29-27, í sama riðli. Löwen var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 15-13, en gekk illa að skora í síðari hálfleik. Þeir eru með fjögur stig eftir fyrstu fjóra leikina í riðlinum. Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði fjögur mörk úr fimm skotum er Pick Szeged vann átta marka sigur á gamla stórveldinu Cejle Lasko, 32-27. Pick er með fullt hús stiga, átta stig, eftir fyrstu fjóra leikina í riðlinum en Cejle er í næst neðsta sætinu með tvö stig. Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði sjö mörk og Arnar Freyr Arnarsson skoraði eitt er Kristianstad tapaði með tveimur mörkum, 33-31, fyrir Vive Kielce. Kristianstad er án stiga í A-riðlinum en þeir eru í afar sterkum riðli. Vive er í öðru sæti riðilsins, með jafn mörg stig og Barcelona. Ómar Ingi Magnússon skoraði sex mörk og Janus Daði Smárason fjögur er Álaborg vann tveggja marka sigur, 31-29, í EHF-bikarnum er liðin mættust í Danmörku í dag.
Handbolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Í beinni: Man. City - Arsenal | Risaleikur í enska Enski boltinn Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Gummersbach gaf mikið eftir í seinni hálfleik Íslendingaliðið byrjar vel í titilvörninni Sjá meira