Varaforseti Alþingis og félagsmálaráðherra í nafnarugli Heimir Már Pétursson skrifar 9. október 2018 20:00
Einum varaforseta Alþingis og félagsmálaráðherra varð báðum fótaskortur á tungunni þegar þeir mundu ekki hvað menn hétu í fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. Guðjón S. Brjánsson fyrsti varaforseti Alþingis átti í erfiðleikum með að muna nafn félagsmálaráðherra þegar hann kynnti ráðherrann til leiks til að svara fyrirspurn frá Oddnýju G. Harðardóttur þingmanni Samfylkingarinnar. „Til máls tekur háttvirtur félags- og jafnréttismálaráðherra,” sagði Guðjón og hikaði allgóða stund. „Og hann heitir Ásmundur Einar Daðason,“ bætti Guðjón síðan við eftir að hafa skoðað nafnalista þingmanna. En ekki greyptist nafn ráðherrans í minni fyrsta varaforseta, því svona kynnti hann ráðherrann til leiks öðru sinni í umræðunni. „Þá tekur til máls háttvirtur félags- og jafnréttismálaráðherra Ásmundur Einar Davíðsson.“ „Reyndar Daðason virðulegur forseti. En ég tek viljann fyrir verkið,“ svaraði Ásmundur Einar. Fyrsti forseti hafði reyndar einnig í tvígang kynnt háttvirtan ráðherra í stað hæstvirtan ráðherra eins og þingsköp segja til um, en vandaði sig sérstaklega þegar hann kynnti félagsmálaráðherra til leiks í þriðja sinn að lokinni fyrirspurn Guðmundar Inga Kristinssonar þingmanns í Flokki fólksins. „Þá tekur til máls hæstvirtur félags- og jafnréttisráðherra og nú vandar forseti sig alveg sérstaklega; hann heitir án nokkurs vafa Ásmundur Einar Daðason. Bið ég hann velvirðingar á fyrri mismælum,“ sagði Guðjón. Og Ásmundur Einar svaraði um hæl en hrasaði einnig á tungunni. „Virðulegi forseti, hæstvirtum forseta er hér með fyrirgefið. Ég vil þakka háttvirtum þingmanni Guðmundi Inga Guðbrandssyni,“ sagði Ásmundur Einar og uppskar mikinn hlátur í þingsal. „Kristinssyni. Nú fór þingmaðurinn illa. Ég vil biðja háttvirtan þingmann og þingsal velvirðingar á þessum mistökum. Sá sem hér stendur er engu skárri en hæstvirtur forseti,“ sagði Ásmundur Einar Daðason.
Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira