Fjárfestingafélag í eigu Kristínar Pétursdóttur, stjórnarformanns Kviku banka, hagnaðist um 220 milljónir króna á síðasta ári, samkvæmt nýbirtum ársreikningi félagsins, KP Capital.
Stærstur hluti hagnaðarins kemur til vegna söluhagnaðar upp á 189 milljónir króna vegna sameiningar Kviku og Virðingar, sem gekk endanlega í gegn í nóvember í fyrra, en Kristín átti um níu prósenta hlut í Virðingu og var stjórnarformaður verðbréfafyrirtækisins. Arðstekjur félagsins voru jafnframt rúmlega 22 milljónir króna á árinu.
Félag Kristínar átti eignir upp á ríflega 290 milljónir króna í lok síðasta árs og var eigið fé þess á sama tíma um 257 milljónir króna. Til samanburðar voru eignir félagsins 159 milljónir og eigið fé 52 milljónir í lok árs 2016.
Kristín tók við formennsku í stjórn Kviku af Þorsteini Pálssyni á aðalfundi fjárfestingabankans í mars síðastliðnum en Þorsteinn hafði verið stjórnarformaður bankans og forvera hans, MP banka, frá árinu 2011.
190 milljóna króna söluhagnaður Kristínar

Tengdar fréttir

Kvika og einkafjárfestar kaupa lóðir í Vogabyggð
Dótturfélag byggingafélagsins Kaldalóns, sem er í eigu Kviku banka og einkafjárfesta, hefur keypt byggingarrétt á lóðum í Vogabyggð af systurfélagi fasteignaþróunarfélagsins Festis.

Kvika banki að kaupa GAMMA
Kvika banki hf. og hluthafar GAMMA Capital Management hf., betur þekkt sem GAMMA, hafa undirritað viljayfirlýsingu um kaup og sölu á öllu hlutafé GAMMA. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kviku banka.

Velta Kortaþjónustunnar tvöfaldaðist
ortaþjónustan tapaði 1,6 milljörðum króna í fyrra, eins og áður hefur verið upplýst um.

Kvika tekur ekki starfsmannaleiguna og verktakastarfsemina
Meðal þeirra eigna sem eru undanskildar í yfirtöku Kviku banka á Gamma eru Elja þjónustumiðstöð atvinnulífsins ehf. og Domus eignir slhf. og eignir sem tengjast verktakastarfsemi.