Samgönguáætlun og sakamál aldarinnar í Víglínunni Heimir Már Pétursson skrifar 29. september 2018 10:34
Eitt umdeildasta þingmál hvers tíma hefur verið lagt fram á Alþingi eða samgönguáætlun. Hún nær yfir allar framkvæmdir í samgöngumálum sem núverandi stjórnvöld hyggjast ráðast í á næstu fimm til fimmtán árum, hvort sem er í flugvalla- og hafnarmálum eða vegamálum. Þingmenn allra flokka eru á tánum þegar samgönguáætlun er annars vegar, enda snertir hún kjördæmi þeirra og fólkið sem í þeim býr með afgerandi hætti og kjósendur eru ósparir á gagnrýni á þingmenn geri þeir ekki nóg að þeirra mati. Sigurður ingi Jóhannsson samgönguráðherra kemur í Víglínuna til Heimis Más Péturssonar fréttamanns á Stöð 2 og Vísi í hádeginu til að fara yfir áætlunina sem annars vegar nær til ársins 2023 og hins vegar til 2030. Afgerandi kaflaskil urðu í umdeildasta sakamáli Íslandssögunnar á fimmtudag þegar Hæstiréttur sýknaði fimm karlmenn sem rétturinn hafði áður dæmt til þungra refsinga árið 1980 fyrir að hafa orðið tveimur mönnum að bana sex árum áður. Forsætisráðherra hefur fyrir hönd stjórnvalda beðið fimmmenningana og ættingja þeirra afsökunar á framferði réttarkerfisins, en eftir stendur að fjölmiðlar þess tíma og almenningur léku stórt hlutverk í að mennirnir voru dæmdir ásamt Erlu Bolladóttur sem ekki fékk náð hjá saksóknara við endurupptöku málsins. Erla mætir í Víglínuna til að ræða dóminn og þá stöðu sem hún nú er í en þessi mál hafa hvílt eins og mara á henni í fjörutíu og fjögur ár. Víglínan er í opinni dagskrá og beinni útsendingu á Stöð 2 og Vísi klukkan 12:20.
Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira