Aðeins hægt að nota tólf af 58 rafbílatenglum Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 12. september 2018 19:00
Aðeins er hægt að nota fimmtung af þeim rafbílatenglum sem Reykjavíkurborg hefur sett upp í miðborginni þar sem Veitur hafa ekki sett rafmagn í þá. Skrifstofustjóri umhverfisgæða hjá borginni segir að rafbílaeigendur séu orðnir verulega óþreyjufullir. Reykjavíkurborg kannar nú hvaða rekstrarform sé ákjósanlegast fyrir hleðslustöðvar. Guðmundur Benedikt Friðriksson skrifstofustjóri umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg segir að hleðslustöðvar hafi verið settar upp á þrettán stöðum í borginni, þar séu 58 tenglar en aðeins sé hægt að nota tólf þeirra. „Við bíðum ennþá eftir rafmagni inní kassana frá Veitum. Við höfum beðið eftir þessu frá þeim í nokkuð langan tíma en vonumst til að þetta fari að gerast þar sem rafbílaeigendur eru orðnir verulega óþreyjufullir,“ segir hann. Guðmundur segir að verið sé að skoða þrettán staði til viðbótar. „Við erum að fara í tilraunaverkefni á þrettán stöðum og ætlum að sjá hvernig reksturinn og kostnaðurinn koma út. Í framhaldinu þurfum við svo að ákveða hvernig við ætlum að reka þessar hleðslustöðvar,“ segir Guðmundur. Verið sé að horfa til nágrannalanda um hvernig þau hagi rekstri á slíkum stöðvum. Guðmundur segir að það þurfi jafnframt að setja upp hleðslustöðvar í hverfum þar sem fólk á ekki tiltekið stæði eins og algengt er í Vesturbænum og miðborginni. En telur að ríkið þurfi einnig að koma með fjármagn í slík verkefni. „Mér finnst eðlilegt að við leitum til ríkisins með það líkt og gert er í Englandi þar sem ríkið styrkir hleðslustöðvar sem þurfa að vera í borgarlandinu,“ segir Guðmundur að lokum.
Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Fleiri fréttir Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Sjá meira