Úkraína í frábærri stöðu í Þjóðadeildinni eftir sigur á Slóvakíu Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar 9. september 2018 15:00 Yarmolenko skoraði eina mark leiksins vísir/getty Úkraína sigraði Slóvakíu, 1-0 í riðli 1 í B-deild Þjóðadeildarinnar í afar bragðdaufum leik. Leikið var í Úkraínu fyrir luktum dyrum vegna banns sem stuðningsmenn Úkraínu er í vegna óláta. Leikurinn var afar bragðdaufur og gerðist fátt, ef eitthvað markvert í fyrri hálfleik. Í raun gerðist ekkert í leiknum fyrr rúmlega tíu mínútur voru eftir til leiksloka. Þá féll Viktor Tsyhankov í vítateig Slóvakíu og vítaspyrna dæmd. Á vítapunktinn steig Andriy Yarmolenko og skoraði hann úr spyrnunni. Mark Yarmolenko reyndist vera eina mark leiksins og Úkraína náði því stigin þrjú. Úkraína er komið í virkilega góða stöðu í riðlinum eftir að hafa unnið bæði Tékkland og Slóvakíu. Þjóðadeild UEFA
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti
Tapsárir Danir lentu í skærum við lögreglu: Piparúða beitt, ferðaklósetti velt og fimm milljón króna tjón Fótbolti
Tapsárir Danir lentu í skærum við lögreglu: Piparúða beitt, ferðaklósetti velt og fimm milljón króna tjón
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti
Tapsárir Danir lentu í skærum við lögreglu: Piparúða beitt, ferðaklósetti velt og fimm milljón króna tjón Fótbolti