Þetta kemur fram í umfjöllun Skift, vefsíðu sem sérhæfir sig í umfjöllun um ferðaþjónustu á heimsvísu. Þar er fjallað nokkuð ítarlega um vanda Icelandair en Björgólfur Jóhannsson, forstjóri fyrirtækisins, sagði upp störfum í vikunni sökum þess að ákvarðanir sem teknar hafi verið á hans vakt hafa valdið félaginu fjárhagslegu tjóni.
Hlutabréf í Icelandair Group hafa hríðfallið síðustu misseri en samhliða tilkynningu þess efnis að Björgólfur væri hættur gaf félagið út að það hefði lækkaði afkomuspá sína fyrir árið 2018 þar sem tekjur yrðu lægri en spáð hafði verið.
Í tilkynningu sagði að fyrir því væru tvær ástæður, annars vegar að meðalfargjöld hefðu ekki hækkað líkt og spár gerðu ráð fyrir og hins vegar að innleiðing á breytingum á sölu- og markaðsstarfi félagsins sem og breytingum á leiðakerfi hafi ekki gengið nægileg vel fyrir sig.

Gríðarleg aukning á framboði á flugsætum frá árinu 2013
Í frétt Skift, sem ber yfirskriftina „Icelandair í vanda þrátt fyrir iðandi ferðaþjónustu heima fyrir“, er rætt við Mark Drusch, aðstoðarforstjóra ICF, alþjóðlegrar ráðgjafastofu. Segir hann að vandi Icelandair sé í raun einfaldur.„Það er alltof mikið framboð,“ segir Drusch í samtali við Skift og er vitnað í skýrslu CAPA frá júlí þar sem fjallað var um stöðu Icelandair og Wow air.
Í skýrslunni segir að Evrópuflug Icelandair gangi vel en vegna harðrar samkeppni við WOW air hafi Icelandar í auknum mæli horft til Norður-Ameríku, sem hafi haft áhrif á tekjuöflun félagsins þar sem sala á áfangastaði í Norður-Ameríku hafi ekki gengið jafn vel eftir og reiknað var með, líkt og fjallað var um fyrr í mánuðinum.
Í skýrslu CAPA segir að sætaframboð á milli Íslands og Norður-Ameríku hafi aukist um 28 prósent frá því í júlí á síðasta ári og frá árinu 2013 hafi sætaframboðið aukist um 300 prósent. Þetta hafi gert það að verkum að Icelandair hafi þurft að þrýsta verðum á flugsætum niður til þess að fylla flugvélar á flugleiðum til og frá Norður-Ameríku.

Geta ekki lengur stólað að eiga ákveðna hillu sem aðrir snerta ekki
Í frétt Skift segir að í gegnum tíðina hafi stóru flugfélögin ekki litið á Icelandair sem mikinn samkeppnisaðila. Þau hafi litið svo á að ekki væri þess virði að laða til sín þá farþega sem hafi valið að spara sér pening með því að fljúga á milli heimsálfa með stoppi á Íslandi.Það hafi allt breyst fyrir um ári síðan að mati Drusch. Stór bandarísk og evrópsk flugfélög hafi lækkað verð á beinu flugi á milli Norður-Ameríku og Evrópu og þannig hafi verð þeirra verið samkeppnishæft við verð Icelandair á tengiflugi.
„Áður var ákveðinn hluti markaðarins sem þeir áttu og bandarísku flugfélögin voru ekki að keppa við þá um ódýr tengifargjöld,“ segir Drusch um stöðu Icelandair. Nú sé hins vegar mun minni munur á milli tengifargjalda Icelandair og fluggjalda stóru flugfélaganna sem bjóði upp á beint flug.