Ólsarar féllu úr Pepsi deildinni í fyrra eftir tveggja ára veru. Þeir hafa verið í toppbaráttunni í Inkasso deildinni í sumar, hafa dottið niður í fjórða sæti en eru þó aðeins fjórum stigum á eftir toppliði ÍA.
Vísir heyrði í Ejub Purisevic, þjálfara Víkings, sem sagði mikla tilhlökkun vera komna í liðið og bæjarfélagið.
„Margir bíða eftir svona leik. Þetta er stór leikur og það eru ekki margir í liðinu sem hafa spilað svona leiki eða komist svona langt.“
„Það er eðlilegt að fólk hlakki til og vonandi að við getum allavega notið þess,“ sagði Ejub. Hann hefur verið við þjálfun hjá Víkingum síðan árið 2004 og spilaði sjálfur með félaginu frá 2003-2005.
Viðurkenning fyrir starf félagsins

„Þetta er fyrst og fremst viðurkenning fyrir það að við séum að gera hlutina vel og erum á réttri leið. Sérstaklega eftir árið í fyrra þegar við misstum nánast allt liðið, að ná að koma svona vel til baka, komast í undanúrslit og vera í efri hluta fyrstu deildarinnar,“ sagði Ejub.
„Þetta gefur auka sjálfstraust og sýnir að þetta er alveg hægt og gefur okkur meiri von upp á framtíðina.“
„Líka fyrir bæjarbúa, fyrir svona lítin stað, þá gerast svona stórir atburðir ekki á hverjum degi. Þá geta bæjarbúar hist og haft gaman og minnt á að þó við séum frá Ólafsvík þá getum við keppt á svona stóru sviði.“
Samkvæmt íbúatölum Hagstofu Íslands bjuggu 970 manns á Ólafsvík þann 1. janúar síðast liðinn. Á Ejub von á því að Ólsarar fjölmenni í Kópavoginn? „Já, mér skilst það. Ég er nokkuð viss um að við verðum ekki mikið fámennari heldur en Kópavogsbúar í stúkunni.“
Sjóðheitir Blikar virðast óstöðvandiAndstæðingur Víkings í kvöld er Breiðablik. Liðið sem situr á toppi Pepsi deildarinnar, Valsmenn og Stjarnan eiga reyndar leik til góða á Blika, og hefur ekki tapað leik síðan í byrjun júní og unnið síðustu fimm.

„Ég sagði við leikmennina mína þegar við mættum Víkingi Reykjavík [í undanúrslitunum] að til að byrja með eigum við kannski 10 prósent möguleika á að vinna, til að vera sanngjarn. En ef að við vinnum okkar vinnu vel og gerum hlutina rétt þá getur þessi prósentutala hækkað og kannski með tímanum gæti alveg verið kominn 50 prósent möguleiki á að vinna leikinn.“
En er upplag Ejub þá kannski frekar með áherslu á að njóta frekar en að vinna? „Það er ekki til sá íþróttamaður sem stefnir ekki á sigur,“ var hann fljótur að svara.
„Það skiptir engu máli hver andstæðingurinn væri, ég myndi alltaf stefna á sigur. En ég er líka raunsær og veit hvar Breiðablik stendur og hvar við stöndum.“
„Þegar líður á leikinn og ef hlutirnir spilast rétt fyrir okkur þá aukast líkurnar alltaf og í 50/50 leik þá er alltaf möguleiki á því að vinna,“ sagði Ejub Purisevic.
Leikur Breiðabliks og Víkings hefst klukkan 18:00 á Kópavogsvelli. Hann verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport, útsending hefst klukkan 17:45.