Enski boltinn

Everton losar sig við Mirallas og Williams

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Kevin Mirallas
Kevin Mirallas vísir/getty
Marco Silva tók við stjórnartaumunum hjá enska úrvalsdeildarliðinu Everton í sumar og hefur á undanförnum vikum unnið hörðum höndum að því að laga leikmannahópinn að sínum kröfum.

Wayne Rooney var látinn fara frá félaginu fyrr í sumar og í vikunni voru þeir Kevin Mirallas og Ashley Williams lánaðir í burtu.

Williams lék 24 leiki fyrir Everton í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en hefur nú verið lánaður til Stoke City sem mun leika í ensku B-deildinni eftir að hafa fallið úr úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Mirallas á 57 landsleiki að baki fyrir belgíska landsliðið en hann var lék aðeins 5 deildarleiki fyrir Everton á síðustu leiktíð áður en hann var lánaður til Olympiacos í janúar.

Hann hefur nú verið lánaður til Fiorentina í Serie A.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×