Heimamanna bíður það verkefni að finna nafn á nýja lónið sem er komið til að vera Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 10. júlí 2018 11:26 Lónið er nokkuð myndarlegt og er komið til að vera. Mynd/Sumarliði Ásgeirsson
Fullt hús var á íbúafundi í Lyngbrekku á Mýrum sem haldin var vegna skriðufalla í Hítardal um helgina. Heimamanna bíður nú það verkefni að finna nafn á nýja lónið sem myndaðist er stóra skriðan stíflaði Hítará. „Markmiðið með þessum fundi var að rýna í stöðuna og fá heildarmynd af hverjum þætti fyrir sig,“ segir Gunnlaugur A. Júlíusson, sveitarstjóri Borgarbyggðar, í samtali við Vísi. Á fundinn mættu íbúar auk fulltrúa lögreglunnar og almannavarna, Landsbjargar, Veðurstofunnar, Landgræðslunnar, Hafrannsóknarstofnunnar, Bændasamtakanna og Náttúruhamfaratryggingar. „Menn þakka fyrir að þarna hafa ekki orðið manntjón fyrst að þetta gerist á annað borð. Auðvitað er margt sem þarna breytist. Áin breytir um farveg að töluverðu leyti. Það er svona tuttugu prósent árinnar sem verða fyrir varanlegum áhrifum af þessu. Hún náttúrulega stíflast og tæmist á tíu kílómetra kafla.“ segir Gunnlaugur um hvað helst hafi borið á góma á fundinum.Hinn þurri farvegur ofan ármóta við Tálma. Fréttablaðið/Sigtryggur Arí.Tuttugu jarðir sem eiga hagsmuna að gæta vegna veiði í ánni Hítará hefur fundið sér nýjan farveg framhjá skriðunni miklu sem féll úr Fagraskógarfjalli á laugardaginn. Vatnið leitar nú í Tálma, hliðará Hítarár. Þaðan sameinast áin svo aftur sínum gamla farveg þar sem Tálmi sameinaðist Hítará. Áin er vinsæl veiði á og ljóst að hamfararnir muni hafa töluverð áhrif á veiði í ánni.„Laxastiginn við Kattafoss er náttúrulega þurr og ónýtur en það á eftir að koma í ljós hvernig áin þróast,“ segir Gunnlaugur. Það eru þarna hátt í tuttugu jarðar sem hafa hagsmuna að gæta. Svo eru náttúrulega leyfishafar sem að málinu tengjast.“Á fundinum kom fram að sérfræðingar í ferksvatnslífríki hjá Hafrannsóknarstofnun telji að áhrif skriðunnar á fiskinn í ánni muni ekki koma fram fyrr en eftir tvö ár. Seyðin séu þegar farin í sjóinn og í ljós verði að koma hvað gerist þegar þau gangi aftur, hvort hann geti gengið upp í gegnum hraunið þar sem áin nú rennur og hvort mögulega þurfi að byggja nýja laxastiga.Gunnlaugur A. Júlíusson er sveitarstjóri í Borgarbyggð.Fréttablaðið/PjeturFjarskiptaleysi í dalnum hefði gert stærri aðgerðir mjög erfiðar Að mörgu er að huga fyrir heimamenn og þær stofnanir sem koma að málinu og segir Gunnlaugur að Landgræðslan sé meðal annars farin að huga að því hvernig koma megi í veg fyrir moldrok eftir skriðuna. Þá hafi lögregla á svæðinu áhyggjur af því hversu lélegt fjarskiptasamband sé í dalnum. Ljóst sé að ef slys hefðu orðið á fólki vegna skriðunnar hefði lélegt fjarskiptasamband flækt aðgerðir mjög.„Það kom í ljós að fjarskiptasamband við Hítardal er algjörlega óviðunandi. Ef að hefði verið stór aðgerð með miklum samskiptum og þörf á fjarskiptum hefði það verið stórmál. Þarna er mikil umferð, það er mikið sótt í vatnið í veiði á sumrin og svo framvegis. Menn stóðu þá frammi fyrir því að einhver stærri aðgerð hefði verið mjög erfið inn í dalnum vegna fjarskiptaleysis.“Líkt og komið hefur fram hefur myndast töluvert lón þar sem skriðan stíflaði Hítará og segir Gunnlaugur ljóst að það sé komið til þess að vera. Það sé hins vegar verkefni heimamanna að finna nýtt nafn á lónið.
Skriðufall í Hítardal Tengdar fréttir Afdrif laxveiði í Hítará er stærsta málið Margra mannhæða hátt lag af aur og grjóti breiddi sig yfir hluta Hítarár þegar skriða féll úr Fagraskógarfjalli aðfaranótt laugardags. Gífurlegt tjón varð á beitar- og veiðilöndum. Alls óvíst er hvort hægt er að moka framburðinum til svo áin renni í sinn gamla farveg. 9. júlí 2018 08:00 Heppni að enginn hafi verið á veiðum á þeim stað sem skriðan féll Ljóst er að veiðistaðir á svæðinu heyra sögunni til. 8. júlí 2018 19:17 Íbúafundur í Lyngbrekku vegna hamfaranna í Hítardal Fundurinn er meðal annars ætlaður til upplýsingar fyrir þá íbúa sveitarfélagsins sem tengjast hamfarasvæðinu á einhvern hátt. 9. júlí 2018 15:35 Mest lesið Gefur sig fram fimmtíu árum eftir bankarán í Kópavogi Innlent Gufunesmálið: „Þetta átti aldrei að fara svona“ Innlent Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Innlent Íslendingur grunaður um heimilisofbeldi handtekinn í Grikklandi Innlent Sálfræðingar rukka hátt í 26 þúsund krónur Innlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Erlent Alvarlegt vinnuslys í Skagafirði Innlent Þungar áhyggjur af „síversnandi stöðu Íslands“ Innlent Neitar að hitta Pútín án Selenskís Erlent Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Innlent Fleiri fréttir Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Tapsárir Danir lentu í skærum við lögreglu: Piparúða beitt, ferðaklósetti velt og fimm milljón króna tjón Finna áhugann dvína á meðan vinir berjast og deyja á vígvellinum „Það fer enginn lífvörður út í“ Reyndi að kaupa glás af nammi og kom upp um tíu ára bankaræningja Gufunesmálið: „Þetta átti aldrei að fara svona“ Lygilegar tilraunir til að hafa áhrif á sakborning, Reynisfjara og tollar Trumps Olíuleit á teikniborðinu og býst við tíðindum í vetur Smokkamaðurinn enn ófundinn Sjúkrabíllinn bilaður og kemst ekki með sjúkling úr Þakgili Þrír á þaki jeppa á kafi í Jökulsá í Lóni Gefur sig fram fimmtíu árum eftir bankarán í Kópavogi Alvarlegt vinnuslys í Skagafirði Undirbúa steypuvinnu fyrir nýju Ölfusárbrúna Þungar áhyggjur af „síversnandi stöðu Íslands“ „Yfirgangur gyðingahataranna er algerlega óþolandi“ Af hættustigi á óvissustig vegna eldgoss Sálfræðingar rukka hátt í 26 þúsund krónur Tollar, höfundarréttur og þögn lögreglu í kynferðisbrotamálum Engin málaferli vegna slyss á Breiðamerkurjökli Tveir skjálftar um 3,3 að stærð Fundur hafinn í utanríkismálanefnd Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Ráðin nýr forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða Íslendingur grunaður um heimilisofbeldi handtekinn í Grikklandi „Norska leiðin“ sé leið Sjálfstæðisflokksins Eigandi bíls fullur af bensínbrúsum handtekinn Tollarnir tilefni til hvorra tveggja örvæntingar og léttis Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Tveir fluttir með þyrlunni og fjórir með sjúkrabíl Sjá meira
Afdrif laxveiði í Hítará er stærsta málið Margra mannhæða hátt lag af aur og grjóti breiddi sig yfir hluta Hítarár þegar skriða féll úr Fagraskógarfjalli aðfaranótt laugardags. Gífurlegt tjón varð á beitar- og veiðilöndum. Alls óvíst er hvort hægt er að moka framburðinum til svo áin renni í sinn gamla farveg. 9. júlí 2018 08:00
Heppni að enginn hafi verið á veiðum á þeim stað sem skriðan féll Ljóst er að veiðistaðir á svæðinu heyra sögunni til. 8. júlí 2018 19:17
Íbúafundur í Lyngbrekku vegna hamfaranna í Hítardal Fundurinn er meðal annars ætlaður til upplýsingar fyrir þá íbúa sveitarfélagsins sem tengjast hamfarasvæðinu á einhvern hátt. 9. júlí 2018 15:35
Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Innlent
Tapsárir Danir lentu í skærum við lögreglu: Piparúða beitt, ferðaklósetti velt og fimm milljón króna tjón
Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Innlent