Trump og Melaniu, eiginkonu hans, var flogið með þyrlu til bústaðarins við komuna þar sem þau munu dvelja í nótt. Verktakar hafa undanfarna daga unnið hörðum höndum að því að víggirða bústaðinn og nágrenni. Þá er lögreglan í Bretlandi með mikinn viðbúnað vegna komu forsetans.
Forsetahjónin munu reyndar ekki dvelja lengi í London en á morgun er gert ráð fyrir að Trump fundi með Theresu May, forsætisráðherra Bretlands, auk þess sem að hann mun heilsa upp á Elísabetu Englandsdrottningu og sötra te með henni og öðrum við hirð hennar í Windsor-kastala.

Trump virðist þó ekki hafa miklar áhyggjur af fyrirhuguðum mótmælum og tjáði hann sig um þau á blaðamannafundi í Brussel á morgun áður en hann yfirgaf leiðtogafund NATO-ríkjanna.
„Já, það verða kannski mótmæli en ég held að Bretar, Skotar og Írar, eins og þið vitið á ég fasteignir á Írlandi, ég á fasteignir víða, ég held að þessu fólki líki vel við mig og séu sammála mér í innflytjendamálum,“ sagði Trump.