Formaður knattspyrnusambands Gana gripinn við að taka á móti mútum Henry Birgir Gunnarsson skrifar 7. júní 2018 10:00 Hér má sjá formann knattspyrnusambands Gana setja múturnar í plastpoka.
Ganamenn spila á Laugardalsvelli í kvöld en það gustar um knattspyrnusamband þjóðarinnar eftir að formaður sambandsins var gripinn í bólinu við að taka á móti mútum. Í dag verður frumsýnd mynd um spillinguna í fótboltanum í Afríku en þar er Kwesi Nyantakyi, forseti knattspyrnusambands Gana, í aðalhlutverki en hann er einn valdamesti maðurinn í afríska boltanum. Myndin er gerð af manni sem kallar sig Anas og enginn veit hvernig lítur út. Hann hefur safnað myndefni í nokkur ár þar sem verið er að múta yfirmönnum í knattspyrnuheiminum í Afríku sem og dómurum. Þar á meðal aðstoðardómara sem var á leið á HM. Sá er ekki lengur á leiðinni til Rússlands. Í myndinni sést Nyantakyi taka við tæpum 7 milljónum króna í beinhörðum peningum. Hann er einnig í nefnd hjá FIFA og má því ekki þiggja neinar peningagjafir. Formaðurinn sagðist síðan vera með forseta landsins í vasanum og gegn sanngjarnri greiðslu geti hann hjálpað fyrirtækjum og verktökum við að ná samningum við ríkið. Forsetinn er sagður hafa brjálast vegna þessara ummæla og gefið út handtökuskipun á Nyantakyi. Knattspyrnuunnendur í Gana hafa lengi beðið eftir því að sjá þessa mynd því þeir trúa því að nú verði hreinsað til í fótboltaheiminum þar í landi. Í gær greindu einhverjir miðlar frá því að formaðurinn væri hættur en fjölmiðlafulltrúi sambandsins segir að það sé ekki satt. Stiklu úr myndinni frá BBC má sjá hér.
Fótbolti Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Sjá meira