HK á toppinn │ Leiknir hafði betur í baráttunni um Breiðholt Anton Ingi Leifsson skrifar 24. maí 2018 21:12 Brynjar Björn Gunnarsson er þjálfari HK og honum til aðstoðar er Viktor Bjarki Arnarsson. vísir/hk
HK er komið á toppinn í Inkasso-deild karla eftir 3-1 sigur á Þrótti á útivelli í kvöld. Leiknir hafði svo betur í grannaslagnum gegn ÍR, eining 3-1. Bjarni Gunnarsson kom HK yfir á 19. mínútu í Laugardalnum og í upphafi síðari hálfleiks tvöfaldaði lánsmaðurinn frá Stjörnunni, Kári Pétursson, forystu Kópavogsliðsins. Á 57. mínútu minnkuðu þó heimamenn muninn. Aron Þórður Albertsson var þar á ferðinni en tveimur mínútum síðar gerði Ásgeir Marteinsson þriðja mark HK og gerði þar með út um leikinn. HK er á toppnum, að minnsta kosti þangað til á morgun, en liðið er með tíu stig eftir þrjá sigra og eitt jafntefli í fyrstu fjórum leikjunum. Þróttur er með fjögur stig í áttunda sætinu. Leiknir nældi í sín fyrstu stig er liðið vann 3-1 sigur á ÍR í baráttunni um Breiðholt. Sævar Atli Magnússon, Anton Freyr Ársælsson og Sólon Breki Leifsson komu Leikni í 3-0 áður en Björgvin Pétursson minnkaði muninn fyrir ÍR síðla leiks. Breiðholtsliðin eru því bæði með þrjú stig eftir fjóra leiki en liðin sitja í níunda og tíunda sæti deildarinnar. Leiknir er sæti ofar vegna betri markahlutfalls. Úrslit og markaskorarar eru fengin frá urslit.net.
Íslenski boltinn Mest lesið Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu Íslenski boltinn Aberg með vallarmet og meiddur McIlroy bjargaði sér Golf Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Íslenski boltinn Formúlu 1 keppnum í Mið-Austurlöndum aflýst Formúla 1 Antonelli yngstur til að vera á ráspól í sögu Formúlu 1 Formúla 1 Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ Íslenski boltinn Stappar stálinu í Kinsky og segir leikmönnum að fara ekki að grenja Sport „Gerðum heiðarlega tilraun til að henda þessu frá okkur í restina“ Sport „Ég set blóð, svita og tár í þetta og mér finnst ekkert skemmtilegra“ Sport Haukur og félagar eyðilögðu hátíðarhöld Handbolti Fleiri fréttir Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Sjá meira