Ógnuðu húsráðanda með járnkylfum Stefán Ó. Jónsson skrifar 25. maí 2018 06:44 Ofbeldismál voru fyrirferðamikil hjá lögreglunni í nótt. VÍSIR/VILHELM
Lögreglan var send að húsi í Austurbænum í nótt eftir að tilkynning barst um að menn vopnaðar járnkylfum hafi reynt að komast þar inn. Þegar lögreglumenn komu á vettvang voru mennirnir á bak og burt en þeir eru ekki taldir hafa beitt kylfunum. Skömmu síðar er lögreglan sögð hafa haft hendur í hári eins hinna grunuðu, en talið er að sést hafi til hans „henda frá sér ætluðum fíkniefnum,“ eins og það er orðað í skeyti lögreglunnar. Hann var fluttur á Hverfisgötu þaðan sem hann var svo látinn laus að lokinni yfirheyrslu. Þá óskuðu dyraverðir á skemmtistað í miðbænum eftir aðstoð lögreglunnar skömmu eftir miðnætti. Þar hafði einstaklingur tvívegis reynt að slá til dyravarðanna og var hinn erfiðasti. Þegar lögreglan kom á staðinn er viðkomandi sagður hafa róast - en að hann hafi jafnframt orðið æfur aftur eftir að inn í lögreglubílinn var komið. Þegar flytja átti manninn til síns heima hafi maðurinn orðið „hinn versti“ og veittist að lögreglumanni sem sat við hlið hans. Var honum því haldið þangað til komið var í fangamóttöku Hverfisgötu en þá var hann færður í fangaklefa. Ætla má að hann verði yfirheyrður þegar af honum rennur.
Lögreglumál Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Sjá meira