Oddvitaáskorunin: Kom um þúsund fullum vatnsglösum fyrir á skrifstofu félaga Samúel Karl Ólason skrifar 25. maí 2018 21:00 Ágúst Bjarni Garðarsson.
Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2018 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í kjördæmum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum. Ágúst Bjarni Garðarsson leiðir lista Framsóknar og óháðra í Hafnarfirði í sveitarstjórnarkosningunum. Ágúst Bjarni, eða Gústi eins og hann er yfirleitt kallaður, hefur búið í Hafnarfirði alla tíð. Hans metnaður liggur í því að auka þjónustu við bæjarbúa. Hafnarfjörður er dýrasta sveitarfélagið þegar kemur að þjónustu við ungt fjölskyldufólk. Við höfum ekki tekið þátt í þeirri uppbyggingu sem hefur átt sér stað á höfuðborgarsvæðinu þegar kemur að uppbyggingu húsnæðis. Ágúst vill að Hafnarfjörður verði eftirsóttur staður til að starfa á meðal kennarar á öllum stigum. Ágúst er í sambúð með Áslaugu Maríu Jóhannsdóttir og eiga þau tvo stráka þá Hafstein Þór, 5 ára og Teit, 3. mánaða.Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi? Hafnarfjörður en Ísafjörður kemur þar á eftir.Hvar á Íslandi myndir þú helst vilja búa? (Fyrir utan eigið sveitarfélag) Ísafirði, þar er öll mín föðurfjölskylda og gott að vera.Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Ég borða allt eins og kannski sést á mér.Hvaða mat ert þú bestu/ur að elda? Konan mín er ekki hrifinn af soðnum fisk en ég og eldri strákurinn minn fáum okkur það þegar mamman er ekki heima.Uppáhalds „guilty pleasure“ lag? Nothing compares to you.Hvað er það vandræðalegasta sem komið hefur fyrir þig, sem segja má frá? Það var þegar ég var að kynna mig á ensku fyrir fullum sal af fólki og ég var að segja frá því að það væru margir sjómenn í minni fjölskyldu og sagði: „In my family are a lot of semen“ þeir sem að kunna ensku geta ímyndað sér hvernig viðbrögðin voru út í sal. Enskan mín er orðin töluvert betri í dag.Draumaferðalagið? Þó svo að fólk trúir því ekki, þá langar mig að ganga berfættur á meðal innfæddra í Amazon.Trúir þú á líf eftir dauðann? Já og nei. Ég trúi því, eða vil trúa því, að maður geti fylgst með börnunum sínum lifa lífinu.Besti hrekkurinn sem þú hefur gert eða lent í? Það var þegar ég tók þátt í því að fylla um 1000 vatnsglös og settum á skrifstofu samstarfsmanns. Hann varð ekkert mjög kátur og veit ekki ennþá að ég hafi tekið þátt. Kannski kemst hann að því núna.Hundar eða kettir? Hundar.Uppáhalds „guilty pleasure“ bíómynd? Það mun vera Armageddon, lokaatriðið – maður minn!Hvaða leikari ætti að leika þig í bíómynd? Það væri líklega Philip Seymour Hoffman ef hann væri á lífi.Í hvaða Game of Thrones ætt værir þú og af hverju? Mér er sagt að ég væri Hodor en ég átta mig ekki alveg á af hverju.Hefur þú verið tekin/n af lögreglunni? Já, fyrir of hraðan akstur á leiðinni upp Hringbrautina. Bíllinn hefði bara ekki komist upp á minni hraða.Uppáhalds tónlistarmaður? Helgi Björnsson.Uppáhalds bókin? Nóttin sem öllu breytti – Snjóflóðið á Flateyri 1995.Uppáhalds föstudagsdrykkur? Það mun vera Bríó.Uppáhalds þynnkumatur? English breakfast.Þegar þú ferð í fríið, sólarströnd eða menning? Það fer eftir ýmsu. Ég er frekar ljós á hörund og þoli illa sól en góð helgarferð í fallegri borg er eitthvað sem að ég hef mjög gaman af.Hefur þú pissað í sundlaug? Nei ekki ennþá.Hvaða lag kemur þér í gírinn? Time to say goodbye með Andrea Bocelli.Er eitthvað smávægilegt sem farið hefur í taugarnar á þér í þínu sveitarfélagi sem þú vilt laga? Það er dýrt að vera hér með börn, sveitarfélagið er dýrt fyrir fjölskyldufólk og það fer í taugarnar á mér. Það er það sem þarf að laga og við munum laga.Á að banna flugelda? Nei.Hvaða landsliðsmaður í knattspyrnu værir þú og af hverju? Ég væri alveg klárlega Gylfi Sigurðsson, Emil Hallfreðsson eða jafnvel Sara Björk Gunnarsdóttir.Oddvitaáskorunin er hluti af kosningaumfjöllun Vísis. Öllum oddvitum á landinu bauðst að taka þátt.
Kosningar 2018 Oddvitaáskorunin Mest lesið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Lífið Funheit í fimm ára afmæli Lífið Fleiri fréttir „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO Sjá meira