Kyntröllið keyrir rútuna Magnús Guðmundsson skrifar 26. maí 2018 06:00 Þorsteinn fyrir framan eina af rútunum í vinnunni hjá GJ Travel þar sem hann hefur starfað frá því 1985. Vísir/Sigtryggur
Þorsteinn Stephensen, starfsmaður hjá GJ Travel, heldur upp á fimmtugsafmælið sitt í dag og það er vegleg dagskrá sem bíður. Allt frá unga aldri hefur Þorsteinn Stephensen haft brennandi áhuga á bílum. Það var því mikill fengur fyrir Þorstein á sínum tíma þegar hann fékk starf á verkstæðinu hjá Guðmundi Jónassyni að loknu námi við Öskjuhlíðarskólann um miðjan níunda áratuginn. Þorsteinn hefur alla tíð unað hag sínum vel hjá fyrirtækinu og hann segir að þar sé gott að vera en fyrir dyrum eru stór tímamót í hans lífi. „Ég er að verða fimmtugur,“ segir Þorsteinn glaðbeittur og er hinn kátasti með þau tímamót enda ekki ástæða til annars. Hann minnir þó á að afmælisdagurinn sjálfur sé ekki fyrr en 28. maí en hins vegar verði ekki beðið með veisluhöldin lengur en til dagsins í dag. Afmælinu ætlar Þorsteinn að fagna með ættingjum og vinum á þann hátt sem hann hefur gert á fimm ára fresti allt frá því hann varð þrítugur. „Ég ætla að fara í stóra reisu, við förum í rútuferð á Eyrarbakka, en svo um kvöldið verður veisla heima hjá Siggu systur minni í Mosfellsbænum. Þetta verður full rúta af fólki og auðvitað er rútan frá Guðmundi Jónassyni,“ segir Þorsteinn og er glaður og þakklátur með veglegt framlag vinnuveitandans til stórafmælisins. Á Eyrarbakka á að gera sér glaðan dag, skoða Húsið, Sjóminjasafnið og Kirkjubæ en síðan verður haldið í kaffisamsæti að hætti Þorsteins að Byggðarhorni. Aðspurður um hver ætli nú að taka að sér það verkefni að keyra alla ættina, þá stendur ekki á gráglettnu svari: „Kyntröllið,“ segir hann og glottir og vinnufélagarnir skemmta sér yfir stríðninni. Þorsteinn Stephensen.„Hann heitir Árni Björn,“ bætir Þorsteinn við og það leynir sér ekki að viðkomandi bílstjóri er í miklum metum hjá afmælisbarninu. Hann bætir líka við að það hafi alltaf verið gott að vera innan um bílstjórana og kallana á verkstæðinu hjá Guðmundi Jónassyni. „Það hefur alltaf verið gaman að vinna hérna og ég ætla að halda því áfram.“ Utan vinnutíma þá er helsta áhugamál Þorsteins að fara í bíó en hann er duglegri en flestir ef ekki allir við að sjá það sem rekur á fjörur íslenskra kvikmyndahúsagesta. „Ég fer alltaf í bíó á fimmtudags-, föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöldum. Ég fer lang oftast í Háskólabíó og það er alltaf gott að koma þangað. Mikið af skemmtilegu fólki sem er að vinna þar og fínar myndir. Uppáhaldsmyndin mín núna er Dauði Stalíns. Það er rosalega skemmtileg mynd. Svo finnst mér líka gaman að sjá myndir sem eru með góðri tónlist því það er líka gaman að hlusta á tónlistina,“ segir Þorsteinn sem hikar ekki við að sjá góðar myndir oftar en einu sinni, ekki síst ef tónlistin er góð. Þorsteinn hefur ákaflega gaman af tónlist og uppáhaldshljómsveitin er The Shadows sem hann sá og heyrði í bæði þegar hún kom hingað auk þess að hafa elt þá alla leið til Brighton. „Það var rosalega gaman. En ég er líka að fara með föður mínum til Englands í afmælisferð núna í júní og það verður mjög gaman. Í ágúst ætlum við svo að fara til Spánar en þangað förum við á hverju ári. Það er svo heitt og notalegt á Spáni. Mér finnst best að liggja bara á ströndinni eða við sundlaugina og hafa það gott.“ Aðspurður um það hvort það sé eitthvað sem hann vilji koma að í lokin segir Þorsteinn að hann sé mest spenntur fyrir rútuferðinni og að hann vilji þakka þeim sem að henni koma. „Ég ætla að segja takk við systur mínar, Siggu og Herdísi, og líka takk við Árna Björn og alla aðra. Ég hlakka mikið til.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Íslenskir strákar í heimildarmynd um skuggaheim karláhrifavalda Lífið „Jú, ég sá einhverja fræga“ Lífið Svona gekk Sindra Sindrasyni í bílprófinu Lífið „Meðan ég er ánægð skiptir álit annarra engu“ Tíska og hönnun „Þetta var alltaf stóri draumurinn“ Lífið Hugljúft en stutt gaman Gagnrýni Áttu ógleymanlegt augnablik þegar Laufey sá þær í salnum Lífið Herra Hnetusmjör er söngvari ársins Tónlist Klæddist fimm kílóum af mannahárum Tíska og hönnun Betra að setja upp sólgleraugu inni á kvöldin en úti í morgunsólinni Lífið Fleiri fréttir „Þetta var alltaf stóri draumurinn“ Íslenskir strákar í heimildarmynd um skuggaheim karláhrifavalda Svona gekk Sindra Sindrasyni í bílprófinu „Jú, ég sá einhverja fræga“ Villi Netó skellti hráu eggi með skurninni upp í sig Betra að setja upp sólgleraugu inni á kvöldin en úti í morgunsólinni Áttu ógleymanlegt augnablik þegar Laufey sá þær í salnum Komst áfram fyrst íslenskra kvenna á vængjum fjallkonunnar Komu Laufey og félögum á óvart með pulsustandi Hefur safnað sjö milljónum í minningu Jökuls Íslendingur fagnaði Óskarsverðlaunum Ekki lengur „give me five-frambjóðandi“ Hver er Alex Jones? Maðurinn sem vopnvæddi óttann og græddi milljarða Stjörnulífið: Bombur í Hörpu Vilja rauðvín á föstudögum á Selfossi Uppljómun í Kaupmannahöfn breytti lífinu Krakkatía vikunnar: Hljóð, fróð og ljóðaflóð Leitaði aftur til Stígamóta eftir að gömul sár gerðu vart við sig Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Hvernig er hægt að elska foreldrið sem hefur sært mann? „Komum okkur fyrir í Hugrekkislestinni“ Fréttatía vikunnar: Fótur, fit og Gunnar Nelson „Viljum alls ekki fá fólk hingað inn og skamma það“ Gauragangur í Menntaskólanum að Laugarvatni Kelly Clarkson segist hvorki hafa fengið sigurféð né bílinn sem henni var lofað Flughræddur Dóri DNA fékk hrós frá flugfreyju Sigríður Dögg komin í ömmuklúbbinn Andar í burtu kvíðann og drekkur te til að slá á sykurþörfina Fimmta dóttirin skírð Ozzy Gísli Marteinn rís upp í krafti sýklalyfja Sjá meira