Eyrbekkingur nýr aðalvarðstjóri Lögreglunnar á Suðurlandi Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 14. apríl 2018 18:48 Rannveig Brynja Sverrisdóttir, nýr aðalvarstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi með aðsetur á Selfossi. Vísir/Magnús Hlynur Hreiðarsson „
Nýja starfið leggst vel í mig,“ segir Rannveig Brynja Sverrisdóttir, sem hefur verið ráðin í stöðu aðalvarðstjóra hjá Lögreglunni á Suðurlandi úr hópi sjö umsækjenda. Rannveig var auk þess eina konan sem sótti um starfið. „Það gengur út á að samræma og hafa yfirsýn yfir störf almennu deildar og heyrir starfið undir yfirlögregluþjóninn, Svein Kristján Rúnarsson. Þessi aðalvarðstjórastaða með starfstöð á Selfossi er ný en frá sameiningu embættanna hefur verið aðalvarðstjóri á Höfn í Hornafirði,“ segir Rannveig. Rannveig Brynja er fyrsta konan til að starfa í yfirstjórn lögreglunnar í umdæminu. Hún hefur 15 ára starfsreynslu hjá lögreglu, þar af 9 ár sem varðstjóri með mannaforráð. „Ég tek við starfinu 16. maí en hef undanfarið eitt og hálft ár unnið sem rannsóknarlögreglumaður í miðlægri deild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Ég ólst upp á Selfossi en hef undanfarin 34 ár verið búsett á Eyrarbakka,“ bætir Rannveig Brynja við. Þá má geta þess að hún ber út Morgunblaðið á hverjum morgni á Eyrarbakka en það hefur hún gert í 20 ár. Þá er fjölskyldan með kindur og hesta á Eyrarbakka. Eiginmaður hennar vinnur sem fangavörður á Litla Hrauni.
Lögreglumál Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Sjá meira