DeRozan í stuði fyrir Toronto: „Hann er ótrúlegur leikmaður en glataður vinur“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 18. apríl 2018 06:57 DeMar DeRozan fór á kostum. vísir/getty
Toronto Raptors komst í nótt í 2-0 í einvígi sínu gegn Washington Wizards í úrslitakeppni austurdeildarinnar í NBA með öðrum heimasigrinum í röð, 130-119. DeMar DeRozan fór á kostum fyrir heimamenn en hann skoraði 37 stig, tók fimm fráköst og gaf fjórar stoðsendingar en í heildina hitti hann úr fjórtán af 23 skotum sínum. Kyle Lowry, sem skoraði þrettán stig, tók sjö fráköst og gaf tólf stoðsendingar í leiknum, hrósaði DeRozan í hástert á blaðamannafundi eftir leikinn en nýtti þó tækifærið til að stríða besta vini sínum aðeins. „Hann er ótrúlegur leikmaður. Hann er á pari við þá bestu í deildinni. Hann er að vaxa sem leikmaður og hann verður alltaf betri. Hann er glataður vinur en sem körfuboltamaður er hann frábær,“ sagði Lowry léttur í lund. Jaylen Brown skoraði 30 stig fyrir Boston sem komst í 2-0 á móti Milwaukee Bucks og Terry Rozier bætti við 23 stigum og fara Bucks-menn nú heim tveimur leikjum undir í einvíginu. Það kom engum á óvart að gríska fríkið Giannis Antetokounmpo var stigahæstur gestanna með 30 stig en hann bætti við það níu fráköstum og átta stoðsendingum. Í vestrinu komst New Orleans Pelicans svo í 2-0 á móti Portland Trail Blazers með 111-102 sigri á útivelli og fer í fínum málum í tveggja leikja ferð til Portland. Jrue Holiday skoraði 33 stig fyrir New Orleans sem er að koma frekar mikið á óvart í ljósi þess að liðið er án miðherjans Boogie Cousins sem meiddist illa seint á leiktíðinni. Anthony DAvis skoraði 22 stig og tók þrettán fráköst í liði gestanna.
NBA Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira