Aðalatriðið að halda áfram að pjakka Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar 5. apríl 2018 06:00 „Ég hef ekkert sérstaklega verið að hugsa um hvort það sem ég sendi frá mér sé stórkostlegt eða ekki,“ segir Þórarinn. Vísir/ANton
Lespúsl er ný ritröð úr smiðju Þórarins Eldjárns, en þar eru ljóð og sögur úr höfundarverki hans sett saman í litlar bækur. Fyrstu bækurnar heita Eins og vax, Landnámur, Sonnettur og Ævintýri. Þórarinn er spurður um hugmyndina að baki útgáfunni og segir: „Í fyrra þurfti ég að lesa í gegnum allar ljóðabækur mínar og rakst þá á mörg ljóð sem ég mundi ekkert eftir og svo önnur sem voru miklu skárri en mig minnti. Í kjölfarið fór ég að birta á hverjum miðvikudegi eitt ljóða minna á Fésbók, kallaði það ljóðviðrun. Því framtaki var mjög vel tekið. Unnur kona mín og Halldór sonur okkar fengu síðan þá hugmynd að gefa út lítil kver þar sem ljóð og smásögur mínar væru stokkuð upp og sett í nýtt samhengi. Nú eru fyrstu bækurnar komnar út. Sögum sem fjalla um svipað efni er stillt saman og ljóð valin annað hvort út frá bragarhætti eða efnistökum. Ein bókin geymir sonnettur en þar sópaði ég saman öllum sonnettum úr bókum mínum, líka barnabókunum. Þær reynast vera hátt í 40 og úr því verður prýðis ljóðabók.“Styrkleiki hinnar prentuðu bókar Bækurnar fjórar eru áberandi fallega hannaðar. „Eitt þurfti að vera alveg á hreinu og það var að láta þetta líta vel út,“ segir Þórarinn. „Þess vegna fengum við Sigurð Oddsson hönnuð til að hanna bækurnar. Með þessu fallega útliti er í raun og veru verið að undirstrika styrkleika hinnar prentuðu bókar. Þetta eru prentgripir sem eru áþreifanlegir og það er lykt af þeim, sem er nokkuð sem rafbækur og hljóðbækur geta aldrei haft.“ Bækurnar fjórar eru merktar bókstöfum A1 til A4. Áætlað er að enda á bókstafnum Ö í sérlegu stafrófi sem Sigurður hefur hannað og Þórarinn segir að ef allt fari samkvæmt áætlun verði bækurnar á endanum 128. Bókaforlagið Gullbringa gefur bækurnar út en það er í eigu fjölskyldunnar. Bækurnar fást í helstu bókabúðum og í vefsölu á gullbringa.is. „Þetta er eins konar heimilisiðnaður,“ segir Þórarinn. Hann segir að einnig verði hugað að því að þýða bækurnar á hin ýmsu tungumál. Fjórar bækur eru komnar út í ritröðinni Lespúsl.Ekki aftur snúið Þórarinn mun fagna 45 ára höfundarafmæli á næsta ári. Bar það vott um bjartsýni að ætla að lifa af ritstörfum fyrir 45 árum eða var það raunverulegur möguleiki? „Í raun og veru held ég að það hafi ekki verið möguleiki. Ef ég hefði hugsað dæmið praktískt allt til enda, þá hefði ég sagt strax: Það er ekkert vit í þessu. Ég hugsaði bara ekki þannig. Ég gerði þetta og það hefur gengið vel. Maður verður ekki auðugur af skriftum en ekki hangir maður samt á horriminni.“ Hann segist vinna af meira öryggi nú en í upphafi ferils síns. „Núna veit ég hvernig á að gera hlutina. Kannski er það ekki gott. Kannski er bara betra að renna blint í sjóinn með allt. Allavega er það þannig að úr þessu verður ekki aftur snúið.“ Ljóðabækur og Hamlet Í haust koma út tvær ljóðabækur eftir hann, önnur ætluð börnum, myndskreytt af Sigrúnu systur hans, og hin fyrir fullorðna. „Ætli það sé ekki hægt að segja að saman séu þær fyrir aldurshópinn 5-95 ára,“ segir skáldið. Annað verkefni er þýðing á Hamlet fyrir Þjóðleikhúsið. „Það er afskaplega hressileg og skemmtileg glíma. Hamlet hefur tvisvar áður verið þýddur á íslensku en það er þannig með svona þýðingar að það þurfa alltaf að koma nýjar því orðaforði og málsnið breytist. Eitthvað sem var áður gert verður of hátíðlegt og málið óþjált. Ef maður skoðar leikritaþýðingar fyrir fjörutíu til fimmtíu árum þá er fólk að segja þar hluti sem enginn segir lengur, eins og til dæmis sei, sei.“ Búið og gert Þórarinn er að lokum spurður hvort hann sé ánægður með höfundarverk sitt. „Ég hef löngum litið á það þannig að það sem er gert er búið og gert. Ég er ekki einn af þeim höfundum sem er alltaf að krukka í gamlan texta. Ef eitthvað er endurútgefið eftir mig þá breyti ég helst ekki textanum, síst af öllu ljóðum. Sumir höfundar gera þetta en ég hef aldrei kunnað við það. Ég hef ekkert sérstaklega verið að hugsa um hvort það sem ég sendi frá mér sé stórkostlegt eða ekki. Aðalatriðið er að halda alltaf áfram að pjakka. Í heildina er ég ánægður.“
Birtist í Fréttablaðinu Menning Mest lesið „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir Lífið samstarf Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið Halldór Haraldsson er látinn Tónlist Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar Bíó og sjónvarp Lést af völdum alnæmis Lífið Fleiri fréttir „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Sjá meira