Versti þjófur heims? Stal tyggjókúluvél en skildi peningakassann eftir Samúel Karl Ólason skrifar 12. mars 2018 16:40 Þjófurinn ákveður að stinga vélinni út um hundalúguna.
Starfsmenn dýraskýlis í Sacramento í Bandaríkjunum birtu um helgina myndband af þjófi sem braust þar inn til að ræna tyggjókúluvél. Fjölmiðlar ytra hafa titlað manninn versta þjóf í heimi þar sem aðfarir hans voru beinlínis hlægilegar og gekk honum hræðilega að stela vélinni. Þjófurinn hundsaði þó alfarið peningakassa sem var á borði við hliðina á honum og innihélt mikið fé. Ránið sjálft átti sér stað á miðvikudaginn. Þjófurinn slæmi þröngvaði sér inn í Front Street dýraskýlið í gegnum hundalúgu og greip tyggjókúluvélina. Honum tókst ekki að brjóta upp hurðina að innan frá, en svo virðist sem hún opnist inn á við. Eftir nokkur spörk í hurðina tók þjófurinn til þess ráðs að reyna að stinga vélinni út um hundalúguna. Við það dreifðust tyggjókúlur út um allt og vélin sjálf brotnaði. Hann reyndi einnig að skríða út og draga vélina út á eftir sér en tyggjókúlurnar gerðu honum erfitt fyrir og hann rann mikið til. Þá tók hann upp fjóra smápeninga sem duttu úr vélinni og fékk nýja hugmynd. Hann skreið aftur inn og reyndi að brjóta upp vélina svo hann gæti sleppt því að taka hana með sér. Það gekk þó ekki og ný hugmynd fæddist. „Hinn grunaði fyllist snilligáfu og áttar sig á því að stundum eru fleiri en einar dyr á húsum,“ segir í myndbandi dýraskjólsins. Þjófurinn dró því vélina með sér og skoðaði sig um. Hann komst út bakdyramegin. Þar, á meðan um 50 hundar geltu á hann, kastaði hann því sem eftir var af tyggjókúluvélinni yfir girðingu. Þjófurinn sjálfur gat þó ekki farið yfir girðinguna þar sem hún var úr gaddavír. Hann þurfti því að hlaupa aftur inn og skríða út um hundalúguna. Á meðan að á öllu þessu stóð, fór peningakassinn á borðinu við hliðina á þjófinum algerlega fram hjá honum.
Bandaríkin Tengdar fréttir Varð fyrir eigin bíl á flótta undan lögreglu Hann slasaðist ekki en var handtekinn og var meðal annars kærður fyrir að keyra undir áhrifum áfengis. 8. mars 2018 22:50 Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Fleiri fréttir Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda Sjá meira
Varð fyrir eigin bíl á flótta undan lögreglu Hann slasaðist ekki en var handtekinn og var meðal annars kærður fyrir að keyra undir áhrifum áfengis. 8. mars 2018 22:50