„Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 18. ágúst 2026 11:21 Litríku og fallegu húsin í fjallshlíðinni voru að þessu sinni vettvangur hrottalegs ofbeldis. Getty Tveir menn, 64 og 43 ára, verða í október næstkomandi leiddir fyrir héraðsdóminn í Qeqqa á Grænlandi vegna óvenju hrottalegs manndráps. Drápinu hefur verið lýst sem dýrslegu í grænlenskum miðlum.
Málið varðar 49 ára gamlan mann sem fannst látinn í Kangaamiut 22. október 2025. Ákæruvaldið telur að mennirnir tveir hafi í sameiningu beitt fórnarlambið gróflegu ofbeldi og látið högg dynja á líkama og höfði, sem olli meðal annars fjölda rifbrota og broti á bringubeini. Sermitsiaq fjallar um málið. Samkvæmt ákæruskjalinu er mönnunum einnig gefið að sök að hafa misþyrmt kynfærum fórnarlambsins, sem talið er hafa átt þátt í andlátinu. Verknaðurinn er sagður hafa átt sér stað að kvöldi þriðjudagsins 21. október 2025 fram á morgun miðvikudagsins 22. október. Ekki liggur fyrir hvort mennirnir tveir muni játa manndráp eða neita sök. Verði þeir fundnir sekir fer ákæruvaldið fram á að þeir hljóti ekki skemmri refsingu en níu ára fangelssivist. Báðir hinna ákærðu voru búsettir í Kangaamiut. Ekki hefur verið upplýst um tengsl þeirra á milli, né heldur hvaða tengsl þeir kunna að hafa haft við hinn látna. Mennirnir hafa setið í gæsluvarðhaldi frá því í október 2025. Þriðji maður var einnig handtekinn og grunaður í málinu, en ákæruvaldið upplýsir að hann sæti ekki lengur grun.
Grænland Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent Fleiri fréttir Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Sjá meira