Þetta kom fram í máli Baldvins Björns Haraldssonar, lögmanns Hörpu ohf., við munnlegan málflutning í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Í dómsal í gær var hart tekist á um frávísunarkröfu Kára Sturlusonar og félags hans, KS Productions slf., í málinu.
Líkt og greint hefur verið frá stefndi Harpa tónleikahaldaranum Kára og félagi hans til endurgreiðslu á 35 milljóna fyrirframgreiðslu sem hann fékk af miðasölutekjunum og fékk kyrrsetningu á eignir hans.
Sjá einnig: Sakna tuga milljóna úr miðasölu hjá Sigur Rós
Kári var ekki viðstaddur í dómsal í gær en lögmaður hans, Steinbergur Finnbogason, fór þar í löngu máli fram á frávísun með vísan í vanreifun, óskýrðar kröfur og gekk svo langt að segja málatilbúnað stefnanda allan í „skötulíki.“

Í dómsal kom fram að tekjur af tónleikunum hafi í heildina numið um 80-90 milljónum króna og af þeim fjármunum hafi að sögn Baldvins Björns Harpa leyft sér á sínum tíma að greiða Kára fyrirfram 35 milljónir króna í trausti þess að hann myndi nota þá fjármuni í að undirbúa tónleikana.
Svo fór, líkt og fram hefur komið í tilkynningu Hörpu og Sigur Rósar, að samningi við Kára var rift vegna meintra vanefnda og trúnaðarbrests og hann því ekki aðili að tónleikunum lengur.
Baldvin Björn lagði áherslu á að ekki væri um bótakröfu að ræða í málinu, einungis endurgreiðslu á fyrirframgreiðslunni með vísan í samning Hörpu og Kára. Lögmaðurinn sagði málið snúast um 35 milljónir sem virtust hafa „gufað upp“ sem ekki sé gott fyrir eigendur Hörpu, ríki og borg. Málshöfðunin og kyrrsetning eigna hafi því verið til að tryggja endurgreiðslu enda áhöld um að Kári væri borgunarmaður.
Baldvin Björn sagði Kára hafa vikist undan áskorunum um endurgreiðslu, en lögmaður hans vildi meina að engin gögn væru lögð fram því til staðfestingar að slíkt hafi ítrekað verið reynt.

Hvort Kári og KS Productions ættu síðan kröfu vegna útlagðrar vinnu við undirbúning tónleikanna áður en kom til riftunar væri annar handleggur. Þetta tiltekna mál snerist um endurgreiðslu á hinni háu fyrirframgreiðslu.
Fram kom í dómsal að greiðslur Hörpu ohf. til Kára hafi verið gerðar í nokkrum millifærslum frá júní til ágúst í fyrra. Þó tónleikarnir hafi farið fram og þeir væru vissulega yfirstaðnir lagði Baldvin Björn áherslu á að enn vantaði 35 milljónir í uppgjörið.
Sjá einnig: Fara fram á kyrrsetningu á eignum Kára vegna skuldar við Hörpu og Sigur Rós
Um þetta gat hafi Harpa og Sigur Rós þurft að semja sérstaklega. Lögmaðurinn sagði ekki hafa verið auðvelt að ákveða hvernig menn skiptu með sér 35 milljóna króna „tapi“ og um væri að ræða „stórkostlegt tjón sem væntanlega er orðið“.
Forstjóri Hörpu, Svanhildur Konráðsdóttir, hefur hingað til ekki viljað tala um þessa upphæð sem tapaða og forsvarsmenn Hörpu og Sigur Rósar treysti því að fjármunirnir fáist endurgreiddir. Miðað við það sem fram kom í málflutningnum í gær hefur nokkur efi verið um það.