Tékkar eru á toppi riðilsins með fullt hús stiga og mæta í Laugardalshöllina á sunnudag. Það verður því við ramman reip að draga en strákarnir okkar sýndu í kvöld að þeir geta staðist hvaða liði sem er á góðum degi í Laugardalshöllinni.
Dagurinn var vissulega góður hjá okkar mönnum í kvöld. Það var gríðarleg barátta sem einkenndi leik íslenska liðsins á löngum köflum og áttu Finnarnir engin svör þegar allt gekk okkar mönnum í hag á lokamínútum leiksins.
Íslendingar spiluðu agaðan leik í fyrri hálfleik. Gerðu fá mistök og komu sér í fín færi. Skotnýtingin hefði mátt vera betri og varnarleikurinn var misjafn. En heilt yfir spiluðu strákarnir vel og þá sérstaklega Martin Hermannsson og Hlynur Bæringsson.

En leikurinn snerist fljótlega í fjórða leikhluta. Pavel Ermolinskij setti niður gríðarlega mikilvæga þriggja stiga körfu sem reyndist neistinn sem íslenska liðið þurfti. Baráttuandinn var í fyrirrúmi, bæði í sókn og vörn, og Finnarnir áttu engin svör. Martin keyrði tvívegis inn í teig og skoraði mikilvæg stig. Tíminn vann með okkar mönnum og þó svo að Finnarnir hafi náð að minnka muninn í fjögur stig þegar 20 sekúndur voru eftir héldu leikmenn Íslands rónni og kláruðu verkefnið með miklum sóma.

Margir komu með gott framlag þar að auki. Haukur Helgi skoraði ellefu stig og setti niður mikilvæga körfu í fjórða leikhluta sem fór langt með að ganga frá leiknum. Hörður Axel Vilhjálmsson, Pavel Ermolinskij og Kristófer Acox skiluðu allir frábæru framlagi þar að auki.
Liðin skiptust á að vera í forystu 28 sinnum í leiknum (!) en leikmenn spiluðu áberandi betur þegar mest á reyndi. Fyrir það ber að hrósa sérstklega enda einkenni öflugrar liðsheildar og baráttuanda. Margir lögðu hönd á plóg í höllinni í kvöld en fyrst og fremst var frammistaða hópsins alls sem stóð upp úr og skóp sigurinn í kvöld.