Heimsmeistararnir mörðu sigur á Norðmönnum Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 12. janúar 2018 21:25 Nikola Karabatić er enn á sínum stað í franska liðinu vísir/epa
Liðin sem mættust í úrslitaleik Heimsmeistaramótsins fyrir ári síðan mættust í dag í seinni leik B-riðils á fyrsta keppnisdegi Evrópumótsins í handbolta sem fram fer í Króatíu. Frakkar höfðu betur í úrslitaleiknum fyrir ári og þeir fóru einnig með sigurinn í kvöld í hörkuspennandi viðureign gegn Norðmönnum. Það voru Norðmenn sem skoruðu fyrsta markið, en Frakkar svöruðu strax og náðu forystunni í leiknum snemma í fyrri hálfleik. Norðmenn héldu þó í við þá og náðu að jafna þegar hálfleikurinn var rúmlega hálfnaður í 10-10. Norðmenn komust svo yfir og náðu mest þriggja marka forskoti, en hálfleikstölur í Porec voru 15-17. Þeir gerðu svo vel í að halda forystu sinni í byrjun seinni hálfleiks, en aldrei fór forskotið í meira en þrjú mörk. Frakkar jöfnuðu 27-27 þegar 51 mínúta var komin á klukkuna. Eftir það var leikurinn í járnum alveg til loka, en Frakkar fóru að lokum með 32-31 sigur. Svekkjandi úrslit fyrir Norðmenn sem höfðu verið yfir megnið af leiknum. Staðan í B-riðli eftir fyrsta keppnisdag er því þannig að Frakkar og Hvít-Rússar eru með 2 stig en Norðmenn og Austurríkismenn án stiga.
EM 2018 í handbolta Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn LASK - Liverpool | Mæta laskaðir til leiks Fótbolti Fleiri fréttir Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Sjá meira