Færðu hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítalans aðgerðargleraugu til að þakka fyrir lífgjöfina Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 20. desember 2017 11:50 Hjónin Gunnar og Vigdís ásamt Bjarna sem gerði aðgerðina á Gunnari eftir hjartaáfallið. Gleraugun má sjá á skjánum fyrir aftan þau. Landspítalinn
Gunnar Birgisson og fjölskylda færðu hjarta- og lungnadeild Landspítalans aðgerðargleraugu að gjöf. Aðgerðargleraugun sýna myndskeið úr aðgerðum og munu þau nýtast vel, meðal annars í kennslu. Gunnar dvaldi á hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítalans á dögunum eftir að hann fékk alvarlegt hjartaáfall. Samkvæmt frétt á vef Landspítalans er hann nú á batavegi og lítur björtum augum á framtíðina. Hann þakkar fyrir meðferðina og umönnunina á deildinni með því að gefa sjúkrahúsinu aðgerðargleraugu. Tækið nýtist bæði skurðteyminu á deildinni og nemendum í faginu. „Þetta eru sérútbúin aðgerðargleraugu sem gera kleift að taka upp það sem skurðlæknirinn sér einn í hjartanu og streyma því beint til teymis á skurðstofu eða í kennslustofu. Gleraugun bæta því kennslu frá því sem nú er þar sem nemarnir geta séð það sem gert er án þess að vera inni á skurðstofunni. Nú er skurðlæknirinn sem stýrir aðgerðinni oft sá eini sem sér beint inn í hjartað og getur ekki sýnt öðrum.“ Gunnar og eiginkona hans, Vigdís Karlsdóttir, hittu Bjarna Torfason yfirlækni hjarta- og brjóstholsskurðlækninga sem gerði aðgerðina á Gunnari eftir hjartaáfallið. Gjöfina ákváðu þau að gefa til þess að þakka lífgjöfina.
Landspítalinn Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Fleiri fréttir Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Sjá meira