Rannsaka ásakanir gegn ríkisstjórn Obama sem snúa að Hezbollah Samúel Karl Ólason skrifar 23. desember 2017 22:01 Jeff Sessions, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna. Vísir/Getty
Jeff Sessions, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur sett af stað rannsókn vegna fregna um að ríkisstjórn Barack Obama hafi komið í veg fyrir umfangsmikla rannsókn á umsvifum Hezbollah samtakann á fíkniefnamörkuðum. Það mun hafa verið gert til að halda viðræðum um kjarnorkuvopnaáætlun Íran áfram. Sessions segist hafa áhyggjur vegna umfjöllunar sem Politico birti á dögunum um að bandarískur rannsakendur hefðu komið að mörgum læstum dyrum við rannsókn á Hezbollah en samtökin eru studd af stjórnvöldum Íran og víða skilgreind sem hryðjuverkasamtök.„Aðgerðir sem ætlað er að rannsaka og handtaka hryðjuverkamenn sem taka einnig þátt í að ýta undir fíkniefnavandann eru í forgangi þessarar ríkisstjórnar,“ sagði Sessions í tilkynningu til fjölmiðla sem send var út í gærkvöldi. Hann sagði mikilvægt að styðja rannsóknir á ofbeldisfullum samtökum sem dreifi fíkniefnum. Meðlimir ríkisstjórnar Obama hafa þvertekið fyrir að hafa haldið aftur af rannsakendum vegna kjarnorkuviðræðnanna. Þetta er í annað sinn á tveimur mánuðum sem Sessins skipar starfsmönnum Dómsmálaráðuneytisins að rannsaka málefni síðustu ríkisstjórnar. Í síðasta mánuði skipaði hann ráðuneytinu að rannsaka sölu fyrirtækisins Uranium One sem hefur verið umdeilt mál meðal Repúblikana og hafa hinar ýmsu samsæriskenningar sem tengjast sölunni litið dagsins ljós.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi Sjá meira