Óvæntur sigur hjá þeim japönsku á HM í dag eftir rassskell um helgina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. desember 2017 18:33 Japönsku stelpurnar fagna sigri í leikslok. Vísir/EPA
Óvænt úrslit urðu á heimsmeistarakeppni kvenna í handbolta í dag þegar japönsku stelpurnar komu mjög á óvart með því að vinna Svartfjallaland aðeins tveimur dögum eftir að þær japönsku höfðu fengið rassskell á móti Dönum. Rússar eru áfram með fullt hús í keppninni en gestgjafar Þjóðverja og Serbar töpuðu sínu fyrsta stigi. Sænsku stelpurnar eru einnig komnar í gang eftir tvo sigurleiki í röð. Slóvenía og Frakkland unnu sína leiki í A-riðli og eru bæði með fjögur stig eins og lið Spánar og Rúmeníu sem mætast innbyrðis seinna í kvöld. Spánn og Rúmenía hafa unnið tvo fyrstu leiki síns. Ungversku stelpurnar fengu sín fyrstu stig á mótinu eftir öruggan sigur á Argentínu í B-riðli og sænsku stelpurnar eru komnar í gang og fögnuðu sínumm öðrum sigri í röð þegar liðið vann Tékka 36-32. Japönsku stelpurnar komu mjög á óvart með því að vinna Svartfjallaland, 29-28, eftir æsispennandi leik í C-riðlinum. Japan tapaði með fjórtán mörkum fyrir Dönum í leiknum á undan en Svarfjallaland vann sjö marka sigur á dönsku stelpunum í fyrstu umferðinni. Aya Yokoshima skoraði sigurmark japanska liðið en Svarfellingar voru þremur mörkum yfir í hálfleik, 15-12.Japan and of the happiest runs of their sports careers! They claim their first #simplywunderbar win 29:28 against a strong Montenegro in Group C. pic.twitter.com/OsYp3GKvrL — IHF (@ihf_info) December 5, 2017 Rússar eru með fullt hús í C-riðlinum eftir öruggan átta marka sigur á Brasilíu í dag, 24-16. Suður-Kórea og Holland unnu bæði sinn annan sigur í D-riðlinum en Þýskaland og Serbía gerðu 22-22 jafntefli í toppslag riðilsins. Þau voru bæði með fullt hús fyrir leikinn. Þýskaland og Serbía eru bæði með fimm stig í efstu tveimur sætunum.Úrslit úr leikjum á HM kvenna í handbolta í dag:A-riðill Slóvenía - Angóla 32-25 Frakkland - Paragvæ 35-13B-riðill Ungverjaland - Argentína 33-15 Svíþjóð - Tékkland 36-32C-riðill Svartfjallaland - Japan 28-29 Rússland - Brasilía 24-16D-riðill Suður Kórea - Kína 31-19 Holland - Kamerún 29-22 Þýskaland - Serbía 22-22
Handbolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Í beinni: Man. City - Arsenal | Risaleikur í enska Enski boltinn Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Leik lokið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Gummersbach gaf mikið eftir í seinni hálfleik Íslendingaliðið byrjar vel í titilvörninni Sjá meira