Ekki að sjá að veður muni ganga niður að ráði fyrr en með morgninum Birgir Olgeirsson skrifar 24. nóvember 2017 15:03 Vonskuveður er víða um land. Vísir/Pjetur
Ekki er að sjá að veður sé nokkuð að ganga niður að ráði fyrr en með morgni, sé mið tekið af veðurspám. Þetta kemur fram í tilkynningu frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar. Á Norðurlandi er talið að vindur byrji að ganga niður með kvöldinu, þannig að Öxnadalsheiði opnast ekki fyrir en með morgni. Fjallvegir á Norðausturlandi munu líklega ekki opna fyrr en líður á morguninn. Á Austurlandi (Fjarðarheiði og Fagridalur) gæti opnanir dregist fram yfir hádegi. Á suðausturhorninu og í kringum Vík dregur ekki úr vindi fyrr en eftir hádegi og á þeim slóðum eru það vindhviðurnar sem þarf að hafa áhyggjur af. Mosfellsheiði er nú opin en Lyngdalsheiði er enn lokuð. Holtavörðuheiði er enn lokuð. Lokað er um Siglufjarðarveg, Ólafsfjarðarmúla, Öxnadalsheiði, Víkurskarð og Hófaskarð. Mývatns- og Möðrudalsöræfi eru einnig lokuð - sem og Fagridalur og Fjarðarheiði. Í Hamarsfirði eru gríðarlegar vindhviður og ófært vegna óveðurs.Nokkur hálka er víða á Suðurlandi en sums staðar hvasst. Lyngdalsheiði er lokuð. Á Vesturlandi er víðast hálka eða snjóþekja en Holtavörðuheiði er enn lokuð. Reiknað er með að heiðin opnist síðar í dag. Helstu langleiðir eru færar á Vestfjörðum en Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði eru ófærar og á Ströndum er að mestu ófært norðan Steingrímsfjarðar. Hálka eða snjóþekja er á aðalleiðum á Norðurlandi vestra en sums staðar þyngri færð á útvegum. Siglufjarðarvegur er lokaður. Hríðarveður er á Norðurlandi eystra, vegir víða þungfærir eða ófærir. Lokað er á Öxnadalsheiði, í Ólafsfjarðarmúla og á Víkurskarði. Eins er lokað á Hófaskarði og síðan er lokað yfir Fjöllin frá Mývatni og austur um. Lokað er bæði á Fjarðarheiði Fagradal vegna veðurs. Víðast er fært á Héraði en Vatnsskarð eystra er ófært. Víða er hvasst með austur- og suðausturströndinni og ófært í Hamarsfirði vegna óveðurs.
Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Fleiri fréttir Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Sjá meira