Weinstein sakaður um að brjóta gegn lögum um mansal Birgir Olgeirsson skrifar 27. nóvember 2017 22:39 Harvey Weinstein Vísir/Getty
Bandaríski kvikmyndaframleiðandinn Harvey Weinstein hefur verið sakaður um að brjóta gegn lögum um mansal. Greint er frá því á vef The Guardian að leikkonan Kadian Noble hafi höfðað mál gegn Weinstein. Í málshöfðuninni er Weinstein sakaður um að hafa boðið leikkonunni á hótel herbergi hans á meðan kvikmyndahátíðin í Cannes í Frakklandi stóð árið 2004. Nobel segir Weinstein hafa haldið því fram að hann vildi ráða hana í hlutverk í væntanlegri mynd. Hún segir Weinstein hafa káfað á henni áður en hann króaði hana af inni á baðherbergi þar sem hann neyddi hana til kynlífsathafna. Í stefnunni segir Noble kvikmyndaframleiðandann hafa tjáð henni að ef hún myndi „slaka á“ þá myndu opnast dyr fyrir hana í kvikmyndaheiminum. Noble höfðar einnig mál á hendur bróður Harvey, Bob Weinstein, og fyrirtækinu sem þeir stofnuðu saman, The Weinstein Company, fyrir vanrækslu í málinu. Í stefnunni er fjallað um hlut ónafngreinds framleiðanda hjá The Weinstein Company sem hringdi í leikkonuna og sagði henni að vera „góða stelpu og verða við óskum hans“. Talskona Weinstein segir hann neita þessum ásökunum um kynlíf án samþykkis. Hann hafi áður neitað því að hafa hótað leikkonum ef þær yrðu ekki við kynferðislegum umleitunum hans. Fyrr í dag höfðaði ónafngreind kona mál gegn Weinstein í Bretlandi, en hún sakar hann um kynferðisbrot gegn henni.
Mál Harvey Weinstein Bandaríkin Kynferðisofbeldi Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Fleiri fréttir „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Sjá meira