Fráfarandi ráðherra sagður brátt á heimleið Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 17. nóvember 2017 07:00 Saad al-Hariri, fráfarandi forsætisráðherra Líbanons. Nordicphotos/AFP
Saad al-Hariri, fráfarandi forsætisráðherra Líbanons, er frjáls ferða sinna og mætti ferðast til Frakklands hvenær sem er. Þetta sagði Jean-Yves Le Drian, utanríkisráðherra Frakklands, í gær. Þá sagði hann fund sinn með Hariri í Sádi-Arabíu hafa verið góðan, Hariri væri heill heilsu og hann myndi senn snúa aftur til Líbanons. Líbanskir ráðamenn hafa haldið því fram undanfarið að Hariri sé haldið gegn vilja sínum í Sádi-Arabíu og að Sádi-Arabar hafi neytt hann til að segja af sér á dögunum. Fæstir hafa gert það undir nafni en Michel Aoun forseti gerði það opinberlega á miðvikudag. Sádi-Arabar voru sagðir þrýsta á Hariri vegna lélegs gengis í baráttunni við Hezbollah-samtökin. Átök líbanska hersins við Hezbollah eru leppstríð í eins konar köldu stríði Sádi-Araba og Írans og styður síðarnefnda ríkið Hezbollah. Sádi-Arabar hafna þó ásökunum Líbana. Adel al-Jubeir utanríkisráðherra sagði til að mynda að Hariri væri staddur þar í landi af fúsum og frjálsum vilja. Frakkar hafa reynt að miðla málum í þessari deilu og var Le Drian staddur í Sádi-Arabíu af því tilefni. BBC greinir frá því að Frakkar fari fram á að Hariri fái að ferðast til Líbanons til að tilkynna um afsögn sína í eigin persónu. Því eru Sádi-Arabar sagðir hafa hafnað og því virðist sem svo að samkomulag hafi náðst sem gengur út á að Hariri fái að ferðast til Frakklands.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira