Erlent

Dustin Hoffman sakaður um kynferðislega áreitni gegn 17 ára stúlku

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Dustin Hoffman, leikari. Anna Graham Hunter segir Hoffman hafa klipið sig og rætt við hana á óviðeigandi hátt um kynlíf en Hoffman var 48 ára gamall, 31 ári eldri en Hunter.
Dustin Hoffman, leikari. Anna Graham Hunter segir Hoffman hafa klipið sig og rætt við hana á óviðeigandi hátt um kynlíf en Hoffman var 48 ára gamall, 31 ári eldri en Hunter. vísir/getty

Bandaríski leikarinn Dustin Hoffman hefur verið sakaður um kynferðislega áreitni gegn 17 ára stúlku árið 1985. Stúlkan, sem í dag er fullorðin kona, segir frá reynslu sinni af því að starfa með Hoffman í Hollywood Reporter.



Konan heitir Anna Graham Hunter og var starfsnemi á tökustað myndarinnar Death of a Salesman. Hunter segir Hoffman hafa klipið sig og rætt við hana á óviðeigandi hátt um kynlíf en Hoffman var 48 ára gamall, 31 ári eldri en Hunter. Segja má að Hoffman hafi á þessum tíma verið á hátindi frægðar sinnar.



„Hann bað mig um að nudda á sér fæturnar á fyrsta degi í tökum. Ég gerði það. Hann daðraði mjög opinskátt, kleip mig í rassinn og talaði um kynlíf bæði við mig og fyrir framan mig. Einn daginn fór ég í búningsherbergið hans til að taka niður pöntun fyrir morgunmat. Hann leit á mig, glotti og sagði: „Ég ætla að fá harðsoðið egg og linsoðinn sníp.“ Fylgdarlið hans hló dátt en ég var orðlaus og fór. Síðan fór ég á klósettið og grét,“ skrifar Hunter.



Hunter skrifaði ítarlega um hegðun Hoffman þær fimm vikur sem þau voru á setti í dagbók sem hún sendi systur sinni.



Sló í hann og sagði honum að hann væri ógeðslegur gamall karl

„Í dag, þegar ég var að fylgja Dustin í limósínuna hans, snerti hann rassinn minn fjórum sinnum. Ég sló alltaf í hann og sagði honum að hann væri ógeðslegur gamall karl,“ skrifaði Hunter.



Hún segir að á tökustað hafi henni verið skipað að láta hegðun hans yfir sig ganga og „fórna“ gildum sínum fyrir framleiðslu myndarinnar.



„Núna, 49 ára gömul, skil ég að hegðun Dustin Hoffman passar inn í ákveðið mynstur af því sem konur í Hollywood og alls staðar hafa verið að upplifa. Hann var rándýr, ég var barn, og þetta var kynferðisleg áreitni.“



Hoffman hefur svarað Hunter með afsökunarbeiðni.



„Ég ber mikla virðingu fyrir konum og mér líður hræðilega ef eitthvað sem ég hef gert hefur látið henni líða illa. Mér þykir þetta miður. Þetta endurspeglar ekki minn innri mann.“



Hoffman er ekki sá fyrsti í Hollywood sem hefur þurft að svara fyrir ásakanir um kynferðislega áreitni og/eða kynferðislegt ofbeldi síðustu vikur. Allt byrjaði þetta með því þegar fjöldi kvenna steig fram og sagði frá óviðeigandi hegðun og brotum kvikmyndaframleiðandans Harvey Weinstein.



Þá hafa í þessari viku komið fram ásakanir á hendur leikaranum Kevin Spacey en tveir karlmenn hafa sagt að Spacey hafi brotið á þeim þegar þeir voru unglingar. Spacey notaði tækifærið þegar þessar ásakanir komu fram og kom út úr skápnum sem samkynhneigður maður og baðst afsökunar á hegðun sinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×