Veiðar á norsk-íslenski síld hafnar Stefán Ó. Jónsson skrifar 4. október 2017 08:09 Skipum hefur fjölgað á síldarmiðunum síðustu dagana enda eru mörg skipanna búin með makrílkvótann. VÍSIR/EYÞÓR
Veiðar á síld úr norsk-íslenska síldarstofninum eru hafnar af krafti og er veiðin sögð fara vel af stað. Fram kemur í frétt á vef HB Granda að lokið hafi verið að vinna síðasta makrílfarm Víkings AK hjá uppsjávarfrystihúsi Granda á Vopnafirði um síðustu helgi. Nú sé það hins vegar vinnsla á síld sem allt snýst um í bæjarfélaginu. „Við erum nú í þriðja hreina síldartúrnum en í þeim tveimur fyrri vorum við með 900 og 1.000 tonna afla. Þetta lítur vel út að öðru leyti en því að það er búin að vera ótíð á miðunum. Gærdagurinn nýttist skipunum ekki og það lægði ekki fyrr en í morgun. Svo á aftur að hvessa með kvöldinu þannig að tíðarfarið er ekki beinlínis hagstætt,“ er haft eftir Guðlaugi Jónssyni, skipstjóra á Venusi NS, á vef HB Granda. Skipum hefur fjölgað á miðunum síðustu dagana enda eru mörg skipanna búin með makrílkvótann. Í sömu frétt segir Magnúsar Róbertssonar, vinnslustjóra HB Granda á Vopnafirði, að síldin sé fínasta hráefni. „Þetta er mjög góð síld og meðalvigtin hefur verið um 350-360 grömm. Það var ekkert mál að skipta yfir í síldarvinnsluna. Við erum með flokkara fyrir síld og makríl uppsetta og vinnslulínan er sú sama,“ segir Magnús sem hann vonast til að vinnsla á norsk-íslenskri síld dugi húsinu næstu þrjár vikurnar.
Mest lesið Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Rúmur milljarður til Viðskiptaráðs og SA á fimm árum Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Fleiri fréttir Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Sjá meira