Var áður McCarthy en er nú Gunnarsdóttir og vill læra íslensku Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. október 2017 15:30 Kristen Denise McCarthy með íslenska fánann á landsleik í Ungverjalandi. Vísir/ÓskarÓ
Kristen Denise McCarthy mætir aftur til leiks í Domino´s deild kvenna í körfubolta í Stykkishólmi í kvöld þegar Snæfell tekur á móti Íslands- og bikarmeisturum Keflavíkur. Þetta verður fyrsti leikur Kristen Denise McCarthy á Íslandi síðan að hún hjálpaði Snæfell að vinna Íslandsmeistaratitilinn vorið 2015. Kristen Denise McCarthy var þá með 24 stig, 6 fráköst, 5 stoðsendingar, 3 stolna bolta og 3 varin skot í síðasta leiknum sem var einmitt á móti Keflavík. Eftir leikinn þá hélt Kristen upp á Íslandsmeistaratitilinn með því að syngja lagið Í síðasta skipti með Friðriki Dór. Jón Björn Ólafsson á Karfan.is fékk Kristen til að syngja lagið og tók það upp. Upptöku hans má sjá hér fyrir neðan en Kristen syngur þarna á íslensku eins og ekkert sé. Kristen hefur alltaf haldið tengslum við Snæfellsstelpurnar og Ísland og það kom fram í Körfuboltakvöldinu í gær að hún hafi sett það inn í samninginn sinn að fá kennslu í íslensku í vetur. Leikmaðurinn Kristen McCarthy er líka frábær en í 35 leikjum sínum á Íslandsmótinu 2014-15 þá var hún með 28,2 stig, 12,8 fráköst og 3,2 stoðsendingar að meðaltali í leik. Það vakti líka athygli að þegar stelpurnar voru látnar kynna sig fyrir grafíkina í Körfuboltakvöldinu í vetur þá kynnti Kristen sig ekki sem Kristen Denise McCarthy heldur sem Kristen Gunnarsdóttir.?Leikur Snæfells og Keflavíkur hefst klukkan 19.15 og verður einnig í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Aðrir leikir kvöldsins eru Haukar-Stjarnan, Valur-Breiðablik og Njarðvík-Skallagrímur.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Liverpool - Nottingham Forest | Sækir Iraola fyrsta deildarsigurinn? Enski boltinn Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Enski boltinn Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Fleiri fréttir Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu Sjá meira