Bifreið rann út í Elliðavatn Birgir Olgeirsson skrifar 16. september 2017 08:25 Erill hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Vísir/Eyþór
Á ellefta tímanum í gærkvöldi hafði eigandi bíls samband við lögreglu eftir að bíll hans hafði runnið út í Elliðavatn við Heiðmörk. Eigandinn taldi sig ekki hafa gengið tryggilega frá bifreiðinni þegar hann yfirgaf hana og sagðist ekki hafa skilið hana eftir í gír. var dráttarbifreið fengin á vettvang sem náði bílnum úr vatninu. Þetta var á meðal fjölda verkefna sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti í gærkvöldi og í nótt. Síðdegis í gær var ung stúlka handtekin í Kringlunni grunuð um búðarhnupl. Hún var einnig grunuð um nytjastuld bifreiðar, vörslu fíkniefna og brot á lyfjalögum. Var hún vistuð í fangageymslu lögreglu vegna rannsóknar máls. Klukkan 10 í gærkvöldi var maður í mjög annarlegu ástandi handtekinn í bílastæðahúsi í miðborginni þar sem hann hafði brotið rúður í tveimur bílum. Var hann handtekinn og vistaður í fangageymslu en við leit á manninum fundust ætluð fíkniefni og hnúajárn. Rétt fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi var bifreið stöðvuð á Vesturlandsvegi við Reykjanesbraut. Par var í bifreiðinni sem var handtekið, grunað um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna, aka án ökuréttinda, vörslu fíkniefna og fleira. Parið var vistað í fangageymslu lögreglunnar en tekið er fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að bifreiðin hefði verið ótryggð og skráningarnúmer klippt af. Á fimmta tímanum í morgun var maður handtekinn í Kópavogi grunaður um líkamsárás. Hann var vistaður í fangageymslu lögreglu vegna rannsóknar málsins.
Mest lesið Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Fleiri fréttir Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Sjá meira