Tveir handteknir vegna alvarlegrar líkamsárásar í Hafnarfirði Birgir Olgeirsson skrifar 17. september 2017 07:19 Erill hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Vísir/Eyþór
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo karlmenn í nótt grunaða um alvarlega líkamsárás. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu en þar segir að um eitt leytið í nótt hafi borist tilkynning frá slysadeild Landspítala Íslands um alvarlega slasaðan karlmann á biðstofu. Talið var að hann hefði verið laminn með einhverju áhaldi en eftir athugun kom í ljós að árásin átti sér stað í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði. Lögreglan fór á vettvang og handtók tvo menn vegna málsins og voru þeir vistaðir í fangageymslu vegna frekari rannsóknar. Rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi barst lögreglunni tilkynning um heimilisofbeldi og líkamsárás í póstnúmeri 110. Var karlmaður handtekinn vegna málsins og hann vistaður í fangageymslu en í dagbók lögreglu kemur fram að ekki sé ljóst með meiðsli þolanda. Rétt fyrir klukkan tvö í nótt var ekið á gangandi vegfaranda í Hafnarfirði og stakk ökumaðurinn af. Lögreglan segist vita skráningarnúmer bílsins en bifreiðin hefur ekki fundist og er ekki vitað um meiðsl á þeim sem ekið var á. Á þriðja tímanum í nótt barst lögreglu tilkynning um sofandi karlmann í austurbænum. Um var að ræða ungan mann sem var ósjálfbjarga sökum ölvunar. Ekki náðist í aðstandendur og hann því vistaður í fangageymslu þar til af honum rennur.
Mest lesið Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Fleiri fréttir Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Sjá meira