Flugstjóri hjá Mýflugi segir neyðarbrautina í Reykjavík nauðsynlega Kristín Ólafsdóttir skrifar 21. júní 2017 21:26 Í umræðu um neyðarbrautina hefur oft verið gripið til þess að hún sé nauðsynleg við þjónustu sjúklinga á landsbyggðinni. mynd/vísir
Flugstjóri hjá Mýflugi segir hina umdeildu „neyðarbraut“ á Reykjavíkurflugvelli nauðsynlega. Hann ítrekar að lokun brautarinnar þurfi að setja í samhengi við ýmsa öryggisþætti og segir lendingaraðstöðuna skipta sköpum fyrir sjúklinga á landsbyggðinni. Þá fagnar hann tilkynningu samgönguráðherra um byggingu nýrrar flugstöðvar í Vatnsmýrinni. Rætt var við Þorkel Jóhannsson, flugstjóra hjá Mýflugi sem séð hefur um sjúkraflug til Reykjavíkur, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Aðspurður hvort lendingaraðstaðan umrædda á Reykjavíkurflugvelli sé úr sögunni fyrir sjúkraflug segir Þorkell vona að svo sé ekki.Þorkell Ásgeir Jóhannsson, flugstjóri hjá Mýflugi.Stöð 2/Einar Árnason.„Það ætla ég að vona ekki enda nýlega komið í ljós að Samgöngustofa hefur orðið að viðurkenna að þessi lokun megi ekki teljast endanleg. Ég furða mig reyndar á því hvað Samgöngustofa var lengi að átta sig á því og gefa nokkuð út um það en það er tiltölulega stutt síðan það kom í ljós,“ segir Þorkell í viðtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Þá setur hann spurningarmerki við ákvörðunina alveg frá því að neyðarbrautinni var upphaflega lokað sumarið 2016. Hann segir nauðsynlegt að athuga áhrif lokunarinnar á ýmsa öryggisþætti. „Eins og ég vil meina var bent á og búið að benda á áður en þessi framkvæmd átti sér stað að það yrði að fara fram á ákveðið áhættumat á þýðingu flugvallarins og neyðarbrautarinnar, flugvallarins í þáverandi mynd, fyrir öryggisþætti eins og til dæmis sjúkraflug, almannavarnarflug og fleira,“ segir Þorkell. Segir neyðarbrautina nauðsynlega fyrir sjúklingaÍ umræðu um neyðarbrautina hefur oft verið gripið til þess að hún sé nauðsynleg við þjónustu sjúklinga á landsbyggðinni. Þorkell segist þó ekki hafa nákvæma tölu yfir það hversu mörgum sjúklingum brautin hefur þjónað á síðustu árum. „Ég hef ekki tekið saman neina heildartölu um það en það er ofsalega misjafnt milli ára hversu mikið reynir á þessa braut, það er yfirleitt nokkrum sinnum á vetri sem reynir á það, við þurfum á henni að halda.“ Hann segir að fram að vetrinum sem nú var að líða hafi Mýflug alltaf getað skilað af sér sjúklingi, ef útkallið hafi verið mögulegt á annað borð, en það hafi brugðist í vetur vegna lokunarinnar. Þá ítrekar Þorkell að ekki sé um annan stað en Reykjavík að ræða til neyðarlendingar sjúkraflugs á suðvesturhorni landsins. „Nei, það er ekki um annan stað að ræða. Í vetur voru allavega fjögur skipti þar sem var ekki um annað að ræða. Við gátum ekki lent annars staðar á suðvesturhorni landsins. Við gátum ekki lent í Keflavík þrátt fyrir að við hefðum viljað reyna það.“Líst vel á fyrirhugaða byggingu nýrrar flugstöðvarJón Gunnarsson, samgönguráðherra, tilkynnti í dag um fyrirhugaða byggingu á nýrri flugstöð í Vatnsmýrinni. Þessi staðsetning Reykjavíkurflugvallar hefur verið mjög umdeild en Þorkell fagnar áætlunum samgönguráðherra. „Mér líst ljómandi vel á það ef það finnst lausn á því að þessi flugvöllur geti þjónað okkur jafnvel í framtíðinni og hann hefur gert hingað til, í þeirri mynd sem hann var með þremur brautum.“Viðtalið í Reykjavík síðdegis má hlusta á í heild sinni í spilaranum hér að neðan.
Tengdar fréttir Sjúkravél Mýflugs gat ekki lent í Reykjavík Ekki var hægt að fljúga sjúkraflug með alvarlegan veikan mann frá Hornafirði til Reykjavíkur í gær vegna þess að allar brautir nema NA/SV flugbraut Reykjavíkurflugvallar voru ófærar vegna veðurs. Brautinni var lokað í júlí síðastlið 29. desember 2016 07:00 Samgönguráðherra segir ekki koma til greina að flytja innanlandsflug til Keflavíkur Jón Gunnarsson, samgönguráðherra vill leita lausna í deilunni um framtíð Reykjavíkurflugvallar. 13. janúar 2017 14:38 Vilja opna neyðarbrautina á ný Bæjarráð Akureyrar fjallaði á fundi sínum í gærmorgun um stöðu Reykjavíkurflugvallar og lokun neyðarbrautar. 6. janúar 2017 07:00 Ný neyðarbraut á Keflavíkurflugvelli kostar að lágmarki 280 milljónir Þetta er mat Isavia eftir að stofnunin gerði útreikninga um opnun brautarinnar fyrir innanríkisráðherra. Flugmenn hjá Landhelgisgæslunni og Félag atvinnuflugmanna hafa gagnrýnt að engin braut í þessari stefnu sé opin. 2. október 2016 20:43 Sjúkraflug mögulegt hefði neyðarbrautin verið opin: „Dagur B. Eggertsson ber manna mesta ábyrgð á þessu“ Reykjavíkurflugvöllur er nú lokaður vegna veðurs, en mjög hvöss suðvestan átt er í Reykjavík. Framkvæmdastjóri Mýflugs segir að í slíkri færð væri hægt að lendá svokallaðri neyðarbraut. 20. desember 2016 17:17 Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira
Sjúkravél Mýflugs gat ekki lent í Reykjavík Ekki var hægt að fljúga sjúkraflug með alvarlegan veikan mann frá Hornafirði til Reykjavíkur í gær vegna þess að allar brautir nema NA/SV flugbraut Reykjavíkurflugvallar voru ófærar vegna veðurs. Brautinni var lokað í júlí síðastlið 29. desember 2016 07:00
Samgönguráðherra segir ekki koma til greina að flytja innanlandsflug til Keflavíkur Jón Gunnarsson, samgönguráðherra vill leita lausna í deilunni um framtíð Reykjavíkurflugvallar. 13. janúar 2017 14:38
Vilja opna neyðarbrautina á ný Bæjarráð Akureyrar fjallaði á fundi sínum í gærmorgun um stöðu Reykjavíkurflugvallar og lokun neyðarbrautar. 6. janúar 2017 07:00
Ný neyðarbraut á Keflavíkurflugvelli kostar að lágmarki 280 milljónir Þetta er mat Isavia eftir að stofnunin gerði útreikninga um opnun brautarinnar fyrir innanríkisráðherra. Flugmenn hjá Landhelgisgæslunni og Félag atvinnuflugmanna hafa gagnrýnt að engin braut í þessari stefnu sé opin. 2. október 2016 20:43
Sjúkraflug mögulegt hefði neyðarbrautin verið opin: „Dagur B. Eggertsson ber manna mesta ábyrgð á þessu“ Reykjavíkurflugvöllur er nú lokaður vegna veðurs, en mjög hvöss suðvestan átt er í Reykjavík. Framkvæmdastjóri Mýflugs segir að í slíkri færð væri hægt að lendá svokallaðri neyðarbraut. 20. desember 2016 17:17