Hildur Hjörvar með hæstu meðaleinkunn á mag.jur prófi í sögu lagadeildar Háskóla Íslands Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 24. júní 2017 17:00 Hildur Hjörvar tekur hér við verðlaunum fyrir hæstu meðaleinkunn á BA-prófi 2015. Hilduir Hjörvar
Hildur Hjörvar dúxaði með hæstu meðaleinkunn á mag.jur. prófi í sögu lagadeildar Háskóla Íslands, 9,48. Útskrifað hefur verið með mag.jur. próf frá árinu 2007. Meistararitgerð Hildar var skrifuð undir leiðsögn Róberts Spanó, prófessors og dómara við Mannréttindadómstól Evrópu. Hvað skyldi búa að baki áfanga sem þessum? Hildur talar um þrotlausa vinnu af sinni hálfu. „Mín reynsla er sú að velgengni líti minna út eins og kvikmynda „montage“ og meira eins og þrotlaus vinna. Það er ekkert sérstaklega „glamorous“ við það að sitja sveittur yfir bókum kvöld eftir kvöld og paufast við að skrifa meistararitgerð sem maður hefur ekkert alltaf mikla trú á. Þetta er ekkert mjög „elegant“ ferli, bara mikil vinna.“ Mikill áhugi á réttlæti Spurð að því hvað hafi orðið til þess að hún ákvað að leggja lögfræðina fyrir sig segir Hildur hafa verið áhuga á réttlæti. „Það hljómar mjög klisjukennt að segja að ég hafi sterka réttlætiskennd en ég hef í það minnsta mikinn áhuga á réttlæti og því hvernig hægt er að setja og framfylgja reglum þannig að þær virki en séu jafnframt sanngjarnar.“ Spurð að því hvað taki við segist Hildur nú þegar starfa á LOGOS lögmannsstofu. „Ég er byrjuð að starfa sem fulltrúi á LOGOS lögmannsþjónustu sem er elsta og stærsta lögmannsstofa á Íslandi, en ég hef verið nemi þar síðan 2014. Það er virkilega gefandi að fá að vinna í alvöru málum með reynslumiklum lögmönnum.“ Hér tekur Hildur við verðlaunum fyrir hæstu meðaleinkunn á MA-prófi frá Óttari Pálssyni hrl., sem veitir verðlaun fyrir hönd LOGOS lögmannsþjónustu.Hildur Hjörvar „Mannréttindin hafa alltaf heillað“ Í ljósi þess að meistararitgerð Hildar fjallar um mannréttindabrot er hún spurð að því hvort hún hyggist leggja sviðið fyrir sig. „Ég held það kæmi vel til greina. Ég hugsa að á einhverjum tímapunkti muni ég leggja fyrir mig frekara nám. Það kæmi þá vel til greina að fara í nám á sviði mannréttinda. Mannréttindin hafa alltaf heillað.“ Meistararitgerðin lýtur að friðhelgi einkalífsins Meistararitgerð Hildar fjallar um ábyrgð ríkja á grundvelli Mannréttindasáttmála Evrópu á hlerunum og öðrum inngripum í friðhelgi einkalífs þeirra sem staddir eru utan yfirráðasvæðis þess ríkis sem beitir hlerunum. „Til dæmis ef Bretland hlerar einhvern í Frakklandi,“ segir Hildur til útskýringar. Aðspurð hvort mörg dæmi séu um brot af þessu tagi segir Hildur: „Mannréttindabrot af þessu tagi eru haldin þeim galla að afskaplega fá dómsmál eru rekin um þau vegna þess að eðlis þeirra vegna fara þau fram með leynd. Þolandi brotsins veit því oft ekki af því og leitar því ekki réttar síns.“ Á því gæti þó orðið breyting því innan skamms verða tvö stór mál tekin fyrir frá Bretlandi í kjölfar Snowden lekans. Hún telur að dómar Mannréttindadómstóls Evrópu í þeim málum muni væntanlega hafa fordæmisgildi. Í ritgerðinni bar Hildur saman þróun dómaframkvæmda annars vegar um „ábyrgð ríkja á því þegar þau hafa afskipti af fólki sem er statt utan yfirráðasvæðis þeirra og hins vegar dómaframkvæmd þegar hleranir og eftirlitskerfi er haldið við af ríkinu og hvaða skilyrði slík kerfi þurfa að uppfylla til að þau teljist ekki brjóta mannréttindi.“ Hildur bar síðan saman þessar tvær dómaframkvæmdir og athugaði hvort ábyrgð samkvæmt fyrrnefndu dómafordæmunum gæti verið til staðar vegna hlerunarbrota. Friðhelgi einkalífs viðkvæmur málaflokkur þegar fram í sækir „Ég held að vernd friðhelgi einkalífs muni mjög eiga undir högg að sækja ef Mannréttindadómstóll Evrópu finnur ekki leið til þess að komast að því að ríki sem hlera þvert á landamæri beri ábyrgð á mannréttindum þeirra sem eru hleraðir.“ Hugmyndin að ritgerðarefni kviknaði í Bandaríkjunum Hildur keppti í málflutningskeppni Philip C. Jessup í Bandaríkjunum í fyrra þar sem sett var upp ímynduð atvikalýsing og liðin þurftu að flytja mál fyrir tvö ríki sem snúast um ákveðin deiluatriði og eitt af deiluatriðunum var mál sem laut að því að eitt ríkið hafði njósnað um annað ríki. Ásteytingarefnið var því það hvort í því fælist mannréttindabrot sem ríkið sem hleraði bæri ábyrð á. Hildur segir að í kjölfarið hafi hugmyndin um að skrifa um þetta efni kviknað. Það sé mjög viðeigandi að fjalla um mannréttindabrotamál af þessu tagi í dag á tímum alþjóðavæðingar og aukinnar tæknivæðingar. Mæðgurnar útskrifuðust saman í dag Hildur og móðir hennar, Þórhildur Elín Elínardóttir, samskiptastjóri hjá Samgöngustofu, útskrifuðust saman í dag. „Ég var svo heppin að fá að vera samferða móður minni sem útskrifaðist í dag með MPA í opinberri stjórnsýslu og við ætlum að skála saman við fjölskyldu og vini.“ Mæðgurnar Þórhildur Elín Elínardóttir og Hildur Hjövar hamingjusamar með áfangann.Hildur Hjörvar
Dúxar Mest lesið „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent Valgarð Már er látinn Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi Innlent Mætti með eggvopn á skemmtistað Innlent Éljagangur og slabb í kortunum Veður „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Innlent Fleiri fréttir Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Sjá meira