Ölvaður ók á hús í Hafnarfirði Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 19. júní 2017 07:23 Það var í nógu að snúast hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt. Vísir/Andri Marinó
Um klukkan hálftólf í gærkvöldi var tilkynnt um óhapp við Sléttuhraun í Hafnarfirði þar sem bifreið hafði verið ekið á hús. Ökumaðurinn er grunaður um ölvun við akstur að því er fram kemur í dagbók lögreglu og var vistaður í fangageymslu fyrir rannsókn máls að lokinni sýnatöku. Þá var tilkynnt um líkamsárás við veitingahús í Hafnarfirði um klukkan 21:15 í gærkvöldi og var maðurinn handtekinn og færður í fangageymslu vegna málsins. Alls voru sextán fíkniefnamál skráð í Laugardalnum frá klukkan 18:30 í gærkvöldi og þar til klukkan þrjú í nótt en lokakvöld tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice fór fram dalnum í gær. Upp úr klukkan tvö í nótt var svo tilkynnt um umferðaróhapp þar sem ekið hafði verið á kyrrstæða bifreið í Laugardal en ökumaðurinn hafði keyrt af vettvangi. Hann var handtekinn skömmu síðar grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Að lokinni sýnatöku var hann vistaður í fangageymslu lögreglu. Þá voru fimm teknir fyrir akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna auk þess sem tilkynnt var um umferðaróhapp í Breiðholti um klukkan 19:45 þar sem ökumaðurinn er grunaður um ölvun við akstur. Rúmlega 22 var síðan tilkynnt um innbrot í bifreið í Mosfellsbæ þar sem hurðarlæsing hafði verið skemmd, munum stolið úr bílnum auk skráningarmerkjanna.
Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Fleiri fréttir Nýr eigandi tekur við og skötuunnendur geta andað léttar Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Sjá meira