Undirliggjandi pirringurinn braust út á Twitter í gær þar sem þeim lenti saman Halldóri Halldórssyni oddvita Sjálfstæðismanna og svo fyrrum borgarstjóraefni flokksins, sjónvarpsmannsinum Gísla Marteini Baldurssyni.
Ýmsir veltu vanda flokksins fyrir sér á samfélagsmiðlum og talar Andrés Jónsson almannatengill, sem þekkir vel til iðrastarfsemi flokkakerfisins eftir áralangt starf innan Samfylkingarinnar, um eyðimerkurgöngu Sjálfstæðisflokksins.
Meirihlutinn heldur sjó
Ýmis teikn hafa verið uppi um að flokkarnir séu farnir að hita upp fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar að ári og hefur minnihlutinn sótt hart að Degi B. Eggertssyni að undanförnu og á ýmsum sviðum. Hann hefur verið harðlega gagnrýndur meðal annars fyrir ófremdarástand í húsnæðismálum og að gatnakerfi borgarinnar sé í molum. Svo fátt eitt sé nefnt.

Sigur fyrir Líf
Fylgið færist reyndar til innan meirihlutans. Viðskiptablaðið fer yfir það að fylgi Samfylkingarinnar, sem er með fimm borgarfulltrúa, fari í rúm 22 prósent úr 32 í kosningunum. BF með sína tvo borgarfulltrúa tapar einnig verulegu fylgi og fer úr tæpum 16 prósentum í tæp 5. Þetta er hrun sem ef til vill má rekja til þess að Björt framtíð er í standandi vandræðum út á við í ríkisstjórnarsamstarfinu.
Fylgi Samfylkingarinnar, sem í dag er með fimm borgarfulltrúa, hefur hríðfallið en flokkurinn mælist nú með 22,3% samanborið við 31,9% í kosningunum. Þetta er verður þó að teljast sigur í ljósi útreiðarinnar sem Samfylkingin hlaut í Alþingiskosningunum í fyrra; 5,7 prósent.

En, það eru Vinstri grænir sem eru burðarásinn í fylgi meirihlutans. Þeir tvöfalda fylgi sitt og mælast nú með 21 prósent úr 8. Þetta er hlýtur að teljast mikill sigur fyrir Líf Magneudóttur, eina borgarfulltrúa VG og forseta borgarstjórnar. Mikil innanmein hafa þjakað VG í borginni, tala má um klofning. Sóley Tómasdóttir fyrrverandi oddviti VG í borginni var umdeild og fylgi VG í borginni hafði lengi setið fast með hana sem foringja. Líf og Sóley tókust á hatramlega, Sóley hafði nauman og umdeildan sigur í leiðtogaslag, en Sóley dró sig svo í hlé, Líf tók við og getur nú hrósað sigri sé litið til könnunarinnar. Hún stendur með pálmann í höndunum.
Sjálfstæðisflokkurinn situr pikkfastur
En, það eru vandræði Sjálfstæðisflokksins sem einkum vekja athygli. Sjálfstæðisflokkurinn er vissulega stærsti flokkurinn í borginni, með tæp 26 prósent samkvæmt könnun Gallup. En, þar situr flokkurinn fastur en um er að ræða svipað fylgi og flokkurinn hlaut í síðustu kosningum. Af er sem áður var þegar flokkurinn var með hreinan meirihluta í Reykjavík. En, það er orðið langt síðan.

Vandræði Halldórs eru margslungin. Og víst er að margir Sjálfstæðismenn horfa til breytinga en það er ekki hlaupið að því að finna lausnir.
Gísli Marteinn lætur Halldór heyra það
Undirliggjandi óánægjan braust meðal annars fram í áðurnefndri snakillri Twitter-færslu frá Gísla Marteini Baldurssyni sjónvarpsmanni. Nú ber að hafa það í huga að Gísli Marteinn er ekki hver sem er. Hann fór í prófkjörsslag við Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson árið 2005, slagur sem hann tapaði naumlega. Þetta er stærsta prófkjör sem haldið hefur verið á Íslandi og vel að merkja, í könnunum þá var Sjálfstæðisflokkurinn að mælast með fylgi vel yfir 50 prósentum.
Gísli Marteinn fjaraði út sem vonarstjarna Sjálfstæðisflokksins, einangraðist sem umhverfisverndarsinni, andstæðingur flugvallarins, fylgjandi hjólavæðingu og þéttingu byggðar. En nú er lag og hann lætur Halldór og Sjálfstæðismenn í borginni fá það óþvegið á Twitter:

Halldór Halldórsson bregst við á Twittervegg Gísla Marteins: „Betri strætó. Ekki snúa út úr. Minni mengun. Meira flæði. Samgöngur fyrir alla. Meira val.“
Gísli Marteinn lætur Halldór ekki eiga neitt inni hjá sér: „Þetta er ekki rétt Halldór. Þið viljið meiri og hraðari umferð en meirihlutinn. Kemur skýrt fram. Slíkt skapar aukna svifryksmengun.“
Í samskiptum þeirra má greina undirliggjandi átök um áherslur í borgarpólitíkinni. Halldór gefst ekki upp og svarar vígreifum Gísla:
Áhyggjuefnið fyrir flugvallarvinina B+D í borgarstjórn er ekki að fylgið sé fast í 33%. Heldur hver vill vinna með þeim með þessa stefnu?
— Gísli Marteinn (@gislimarteinn) June 8, 2017
Halldór er stjáklandi í afstöðu sinni, vandræði hans eru nánast áþreifanleg: „Sammála um að við viljum betri strætó? Gott. Við viljum lækka hraða í 30 km. Gott. Betra flæði ekki þrenging og mögulega mislæg gatnamót.“
Heimskir kjósendur
Þá höggva áhugamenn um pólitíkina í borginni eftir því að útskýringar Halldórs á því hvers vegna flokkurinn situr pikkfastur í könnunum mega heita sérkennilegar – ef ekki beinlínis skaðlegar.
Viðskiptablaðið leitaði skýringa hjá oddvita flokksins, hvers vegna þessi staða?

Veik staða Halldórs
Stundin hefur, meðal annarra, þegar gert sér mat úr þessum óheppilegu ummælum. Það getur vart verið til fagnaðar fyrir pólitíkus sem vill vera í náðinni meðal kjósenda að saka þá um heimsku.
Sjálfstæðismenn eru sem sagt í bullandi vandræðum nú þegar tæpt ár er í borgarstjórnarkosningar. Óánægja er með Halldór, staða hans er veik en hann er ekki munaðarlaus innan flokksins.

Samfylkingarmenn kætast
Samfylkingarmenn hafa himinn höndum tekið, allt í einu eru vandræði þeirra ekki í brennidepli og höfð að háði og spotti. Andrés Jónsson segir í gær, á Facebooksíðu sinni, að líklega haldi eyðimerkurganga Sjálfstæðisflokksins í borginni áfram í næstu kosningum. „Þau geta gleymt því að finna einhvern spútnik oddvita sem kæmi sem bjargvættur utan frá. Ættu frekar að horfa til framtíðar og stilla upp einhverjum sem myndi vaxa í minnihluta á næsta kjörtímabili og kæmi til greina sem borgarstjóri 2022.“
Og Magnús Orri Schram, sem meðal annars fór í formannsslag í Samfylkingunni og naut þar stuðnings Dags, tekur undir með Andrési félaga sínum: „Svo virðist sem þeir séu læstir og innilokaðir. Til dæmis sýnist mér þeir vera eini hópurinn (meirihluti eða minnihluti) á öllu höfuðborgarsvæðinu sem er á móti Borgarlínu.“