Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært mennina tvo, sem grunaðir eru um að hafa svikið fé úr Ölgerðinni fyrir tveimur árum síðan, fyrir fjársvik og skjalafals. Talið er að mennirnir hafi haft níu milljónir upp úr krafsinu.
Annar mannanna var á þeim tíma sem meint brot voru framin framkvæmdastjóri hjá Ölgerðinni en hinn starfaði á auglýsingastofunni Vert. Á sá síðarnefndi að hafa gefið út tilhæfulausa reikninga til Ölgerðarinnar sem framkvæmdastjórinn samþykkti til greiðslu.
Ávinningnum, um níu milljónum króna, skiptu mennirnir þannig að helmingur rann til auglýsingastofunnar en helmingur til framkvæmdastjórans og fjölskyldu hans.
Hin meintu brot hófust í lok janúar 2014 en grunur vaknaði um þau réttu ári síðar. Þá kærði Ölgerðin mennina til lögreglu. Færslurnar voru alls 22 og voru upphæðir þeirra á bilinu frá 180 þúsund krónum upp í tæpar 680 þúsund krónur.
Af hálfu ákæruvaldsins er þess krafist að mennirnir tveir verði dæmdir til refsingar og endurgreiðslu hins illa fengna fjár. Frá milljónunum níu dragast 3,6 milljónir sem framkvæmdastjórinn fyrrverandi hefur endurgreitt nú þegar.
Fjársvikin í Ölgerðinni námu níu milljónum

Tengdar fréttir

Yfirheyrslum lokið í Ölgerðarmálinu: Auglýsingastofan opnar bókhaldið
Töluverðar fjárhæðir.

Ölgerðin kærir tvo fyrir meint fjársvik: „Þetta eru töluverðar fjárhæðir“
Vörumerkjastjóri Ölgerðarinnar tekinn til yfirheyrslu og starfsmaður auglýsingastofu.

Reikningarnir til Ölgerðarinnar komu frá Vert
Eigendur Vert markaðsstofu segjast miður sín vegna málsins. Ekki hafi verið ætlunin að valda fjártjóni.