Forsætisráðherra var gestur Kristjáns Kristjánssonar á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Töluvert hefur verið rætt um áform ríkisstjórnarinnar að fella flestar atvinnugreinar í ferðaþjónustu felldar undir efra þrep virðisaukaskatts úr ellefu prósentu í 24 prósent þann 1. júlí á næsta ári og í 22,5 prósent frá 1. janúar 2019.
Hafa þessi áform verið harðlega gagnrýnd, þá sérstaklega frá aðilum innan ferðaþjónustunnar og í kvöldfréttum Stöðvar 2 í síðustu viku sagði framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar að afkoma fyrirtækja í greininni fari hratt versnandi. Var Bjarni meðal annars spurður út í þessa gagnrýni sem og grein Davíðs Þorlákssonar, fyrrverandi formann Sambands ungra sjálfstæðismanna og lögmaður Icelandair Group, í Morgunblaðinu, þar sem hann gagnrýndi áform ríkisstjórnarinnar.
„Hann Davíð Þorláksson er góður maður og ágætis vinur minn en þegar hann skrifar þetta þá situr hann inn á skrifstofunni hjá Icelandair. Þetta eru raddir innan úr greininni. Ef að þú spyrð einhvern innan úr greininni: Hvort viltu að þegar þú selur þjónustuna þína að virðisaukaskattur sé 11 prósent eða eitthvað hærra? Svarið verður alltaf 11 prósent,“ sagði Bjarni.

„Skýr forysta felst meðal annars í því að láta ekki lobbíistana ekki ráða för heldur taka heildarhagsmunina fram yfir sérhagsmuni. Það er það sem við erum að gera í þessu máli,“ sagði Bjarni sem taldi þó að umræðan hefði verið góð og að ferðaþjónustan hefði komið með málefnanleg sjónarmið inn í umræðuna.
Ekki virðisaukaskattprósentan sem ræður úrslitum
Sagði Bjarni að það væri hlutverk stjórnvalda að horfa á stóru myndina og það væri staðreynd að gríðarlegur vöxtur á komu ferðamanna hingað til lands gerði það að verkum að erfiðleikar hefðu skapast og að mikið álag hafi myndast á innviði landsins. Ekki hafi tekist að halda í við þessa miklu fjölgun.
Þá taldi Bjarni að hvaða virðisaukaskattprósenta sem væri í gildi myndi ekki ráða úrslitatriðum um þróun ferðaþjónustunnar hér á landi, þar ræði hvaða sýn menn hefðu á framtíðina í ferðaþjónustunni.
„Mín sýn er sú að hér verði byggð upp ferðaþjónusta sem að treystir á það sem gerir Ísland að sérstökum áfangastað. Þetta hreina loft, náttúran, víðernin, jöklarnir, allt það sem Íslensk náttúra hefur upp á að bjóða. Þetta samfélag sömuleiðis, friðurinn, matvælin, glaðværðin. Við erum á svo margan hátt einstakur áfangastaður,“ sagði Bjarni.
Eitthvað að ef það er ódýrt fyrir ferðamenn að ferðast á Íslandi
Rætt hefur verið um að dýrt sé fyrir ferðamenn að ferðast á Íslandi og að ekki sé á bætandi með væntanlegri hækkun virðisaukaskatt. Sagði Bjarni að eðlilegt væri að dýrt væri fyrir ferðamenn að koma hingað og njóta landsins gæða.„Fyrir mína parta er það þannig að það er ekkert að því að menn þurfi að kosta einhverju til til að koma hingað til Íslands. Ef að það væri virkilega ódýrt að koma hingað myndi það endurspegla ákveðna veikleika í efnahagslegu tilliti á Íslandi,“ sagði Bjani.
„Ef að við ætlum að gera kröfu til þessað hér séu há lífsgæði og að við getum borið okkur saman við það sem best gerist í heiminum getum við ekki á sama tíma ætlast til þess að hér skjóti róti rótum ferðaþjónustustarfsemi þar sem er virkilega ódýrt að njóta þjónustunnar,“ sagði Bjarni.
Það sem myndi ráða úrslitum um framtíð ferðaþjónustunnar væri áhersla á hreinleika og gæði og að tryggja þyrfti að innviðir upplifun ferðamanna væru í lagi.
Hlusta má á viðtalið í heild sinni hér að ofan.