Kolbrún segir í samtali við fréttastofu að væntanlega muni breytt afstaða mannsins skýrast við aðalmeðferð málsins, sem mun að öllum líkindum fara fram í næsta eða þarnæsta mánuði. Hún lagði fram ýmis gögn í málinu, meðal annars símagögn og geðheilbrigðisrannsókn.

Huldi andlit sitt
Thomas Møller sætir ákæru fyrir morðið á Birnu Brjánsdóttur og stórfellt fíkniefnalagabrot en rúmlega 23 kíló af kannabisefnum fundust í káetu sem hann hafði til umráða í togaranum Polar Nanoq. Hann tók formlega afstöðu til ákærunnar í dag þar sem hann neitaði sök í báðum ákæruliðum.
Thomas huldi andlit sitt undir teppi þegar lögreglumenn leiddu hann inn í dómsal klukkan 13 í dag. Hann tók teppið svo af sér þegar dómarinn gekk inn í salinn. Með honum var danskur túlkur sem túlkaði það sem fram fór í salnum. Þinghaldið var um það bil fimmtán mínútna langt.
Thomas er sakaður um að hafa slegið Birnu ítrekað í andlit og höfuð, tekið hana kverkataki og hert kröftuglega að hálsi hennar í rauðri Kia Rio bifreið þann 14. janúar síðastliðinn. Þá hafi hann í framhaldinu varpað Birnu í sjó eða vatn með þeim afleiðingum að hún drukknaði. Birna hlaut af þessu höggáverka á andliti og höfði, auk þess sem hún nefbrotnaði, að því er segir í ákærunni.