Þriggja stiga skotsýning hjá Ernu í undanúrslitaeinvíginu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. apríl 2017 14:30 Erna Hákonardóttir, til hægri, hefur þegar tekið á móti einum stórum bikar á tímabilinu. Hér fagnar hún með Irenu Sól Jónsdóttur. Vísir/Andri Marinó
Erna Hákonardóttir og félagar í Keflavíkurliðinu eru komnar í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn eftir sigur á Skallagrími í oddaleik í gærkvöldi. Fyrirliðinn fór þá á kostum og skorað 20 stig sem er frábær frammistaða hjá leikmanni sem hafi skorað samtals 29 stig í fyrstu fjórum leikjunum. Erna hitti úr 6 af 9 þriggja stiga skotum sínum og eina tveggja stiga karfan hennar var mögnuð flautukarfa í lok fyrri hálfleiks sem kom Keflavík átta stigum yfir. Erna var búin að hitta úr 53 prósent þriggja stiga skotum sínum fyrir leikinn (9 af 17) og frábær nýting fyrir utan þriggja stiga línuna varð því enn glæsilegri eftir framgöngu hennar í gær. Erna tók bara eitt skot og var stigalaus i leiknum á undan sem Keflavík tapaði í Borgarnesi. Keflavík vann alla þrjá leikina í einvíginu þar sem hún skoraði tíu stig eða meira. Erna nýtti 58 prósent þriggja stiga skota sinna í einvíginu (15 af 26) og skoraði sex þristum meira en sú næsta sem var Tavelyn Tillman hjá Skallagrími með níu þrista. Það sem meira er að næstbesta þriggja stiga skyttan í prósentum var Fanney Lind Thomas hjá Skallagrími með 29 prósent þriggja stiga nýtingu (7 af 24). Þriggja stiga skotsýning Ernu var Keflavíkurliðinu afar mikilvæg en restin af liðinu skoraði samtals 17 þrista í þessu fimm leikja einvígi eða aðeins tveimur fleiri en Erna ein. Hinir leikmennirnir þurftu hinsvegar að taka 66 fleiri skot en Erna.Þriggja stiga skotnýting hjá Keflavík í undanúrslitaeinvíginu: Erna Hákonardóttir: 15 af 26 - 58 prósent Restin af Keflavíkurliðinu: 17 af 92 - 18 prósentÞriggja stiga skotnýting hjá Ernu í undanúrslitaeinvíginu: Leikur 1 í Keflavík: 2 af 2 - 100 prósent Leikur 2 í Borgarnesi: 3 af 7 - 43 prósent Leikur 3 í Keflavík: 4 af 7 - 57 prósent Leikur 4 í Borgarnesi: 0 af 1 - 0 prósent Leikur 5 í Keflavík: 6 af 9 - 67 prósent
Dominos-deild kvenna Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira