Breyti umgjörð eldsneytismarkaðar í þágu virkari samkeppni Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 4. apríl 2017 10:24 Rannsókn Samkeppniseftirlitsins miðar að því að koma auga á samkeppnishömlur á markaðnum og grípa til aðgerða til að draga úr þeim. Vísir/GVA
Samkeppniseftirlitið hefur birt fjögur álit þar sem mælst er til þess við Reykjavíkurborg, umhverfis- og auðlindaráðherra, samgöngu- og sveitastjórnarráðherra og Flutningsjöfnunarsjóð olíuvara að þessir aðilar beiti sér fyrir breytingum á umgjörð eldsneytismarkaðar til að stuðla að virkari samkeppni.Álitin eru birt í tengslum við markaðsrannsókn Samkeppniseftirlitsins á markaðnum. Miðar rannsóknin að því að koma auga á samkeppnishömlur á markaðnum og grípa til aðgerða til að draga úr þeim.Að mati Samkeppniseftirlitsins er stefna og framkvæmd Reykjavíkurborgar til þess fallin að hindra samkeppniVísir/GVAReykjavíkurborg endurskoði stefnu sína Tvö álitanna beinast að skipulagsmálum og úthlutun lóða, en ákvarðanir um þetta geta skipt sköpum í samkeppni á eldsneytismarkaði. Mjög mismunandi er hvort og hvernig litið er til samkeppnissjónarmiða við ákvarðanir sveitarfélaga varðandi þessi atriði. Þótt ráðuneytið hafi túlkað lögin þannig að sveitarfélögum beri að taka tillit til samkeppnissjónarmiða við skipulagsgerð og úthlutun lóða, hefur a.m.k. Reykjavíkurborg ekki talið sér skylt að gera það. Að mati Samkeppniseftirlitsins er stefna og framkvæmd Reykjavíkurborgar til þess fallin að hindra samkeppni. Í skipulagi borgarinnar er kveðið á um að spornað verði við fjölgun bensínstöðva í borginni og miðað við að þeim fjölgi ekki. Þótt undirliggjandi markmið eigi fullan rétt á sér, eru sterkar vísbendingar um að þær leiðir sem borgin hefur valið að þessu markmiði hafi lítil eða jafnvel þveröfug áhrif. Tvö álitanna beinast að skipulagsmálum og úthlutun lóða, en ákvarðanir um þetta geta skipt sköpum í samkeppni á eldsneytismarkaði. Mjög mismunandi er hvort og hvernig litið er til samkeppnissjónarmiða við ákvarðanir sveitarfélaga varðandi þessi atriði. Þótt ráðuneytið hafi túlkað lögin þannig að sveitarfélögum beri að taka tillit til samkeppnissjónarmiða við skipulagsgerð og úthlutun lóða, hefur a.m.k. Reykjavíkurborg ekki talið sér skylt að gera það. Að mati Samkeppniseftirlitsins er stefna og framkvæmd Reykjavíkurborgar til þess fallin að hindra samkeppni. Í skipulagi borgarinnar er kveðið á um að spornað verði við fjölgun bensínstöðva í borginni og miðað við að þeim fjölgi ekki. Þótt undirliggjandi markmið eigi fullan rétt á sér, eru sterkar vísbendingar um að þær leiðir sem borgin hefur valið að þessu markmiði hafi lítil eða jafnvel þveröfug áhrif. Ástæðan er m.a. sú að stefna borgarinnar leiðir til þess að nýir eða smærri aðilar eiga erfitt með að komast inn á markaðinn og vaxa. Þar með minnka líkur á virkara samkeppnislegu aðhaldi gagnvart starfandi félögum, en slík samkeppni gæti knúið starfandi félög til að hagræða og e.a. loka óarðbærum stöðvum. Þess í stað getur stefna borgarinnar leitt til þess að starfandi félög haldi að sér höndum við hagræðingu og lokun stöðva.Vísir/VilhelmUpplýsingamiðlun Flutningsjöfnunarsjóðs skaðar samkeppni Tvö álitanna beinast að upplýsingamiðlun Flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara og stjórnskipulagi. Upplýsingamiðlunin felst m.a. í því að sjóðurinn safnar og miðlar til keppinauta á eldsneytismarkaðnum upplýsingum um heildarsölu allra olíufélaganna sem m.a. nýtast félögunum til þess að áætla hlutdeild sína. Eru þessar upplýsingar veittar mánaðarlega. Að mati Samkeppniseftirlitsins er upplýsingamiðlun af þessu tagi ótvírætt skaðleg samkeppni, þegar horft er til þess að eldsneytismarkaðurinn ber ýmis fákeppniseinkenni. Tilmælin beinast einnig að því að samkvæmt lögum um sjóðinn er kveðið á um samstarf keppinauta um tilnefningu stjórnarmanns í sjóðnum, eða að einn fulltrúi sitji í stjórninni frá hverju félagi. Þegar rannsókn eftirlitsins hófst sátu fulltrúar keppinauta saman í stjórninni, en nú er einn stjórnarmaður tilnefndur sameiginlega. Mælist Samkeppniseftirlitið til þess að lögum verði breytt þannig að olíufélögin hafi ekki aðkomu að stjórn sjóðsins.Aðrar mögulegar aðgerðir í kjölfar markaðsrannsóknar Samkeppniseftirlitið hefur með fyrrnefndum fjórum álitum mælst til aðgerða sem eftirlitið telur brýnt að opinberir aðilar grípi þegar til í því skyni að bæta samkeppni á eldsneytismarkaðnum. Til viðbótar þessu er eftirlitið nú að leita viðhorfa aðila á markaðnum um mögulegar aðgerðir af þeirra hálfu til að tryggja að sem minnstar aðgangshindranir séu inn á markaðinn, einkum á birgða- og heildsölustigi, og stuðla að sjálfstæði keppinauta. Viðbrögð skipulagsyfirvalda við framangreindum tilmælum geta haft þýðingu við úrlausn á þessum þætti málsins.
Mest lesið Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Erlend gagnaver sögð skila litlu í þjóðarbúið Viðskipti erlent „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Engar reglur um merkingar á bílastæðum sem rukkað er fyrir Neytendur Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Samstarf Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira