
Brexit – hvað gerist næst?
Peningar verða fyrsta mál á dagskrá
Fyrsta málið sem á að taka á dagskrá skv. 50. greininni eru skilnaðarkjör útgönguríkisins. Í því felst uppgjör hlutdeildar Breta í sameiginlegum skuldbindingum ESB. Af opinberum yfirlýsingum aðila undanfarið er ljóst að þar mun væntanlega bera mikið á milli. Bretar vilja samhliða hefja tafarlaust samninga um viðskiptakjör eftir útgöngu, enda vinnur tíminn ekki með þeim eins og áður sagði. Flest bendir hins vegar til að ríki ESB muni halda fast við að ljúka fyrst samningum um skilnaðarkjörin, áður en framtíðarviðskiptatengsl verða rædd. Leiðtogar ESB munu ekki samþykkja umboð til aðalsamningamanns fyrr en í lok apríl og svo má búast við að fremur lítið gerist í samningaviðræðum fyrr en eftir þingkosningar í Þýskalandi á hausti komanda. Ef peningamálin standa í aðilum, getur því hæglega liðið hálft til eitt ár áður en hafist er handa um samninga um viðskiptakjörin.
Bretar vilja alveg út ...
Það markaði tímamót í janúarlok þegar Theresa May, forsætisráðherra Breta, kvað loks upp úr um það að Bretar myndu ekki æskja sambærilegrar aðildar að innri markaði ESB og t.d. Ísland og Noregur njóta nú með EES-samningnum. Þannig er það orðið ljóst að bresk stjórnvöld vilja setja hömlur á frjálsa för fólks í öndvegi samningsmarkmiða og eru tilbúin að fórna fyrir það hindrunarlausri aðild að einstökum þáttum innri markaðarins. Markmið þeirra í samningunum munu væntanlega verða þau að freista þess að halda eins miklu af þeim markaðsaðgangi sem Bretar nú njóta, áfram eftir að aðild lýkur.
Það er hins vegar ekki einfalt úrlausnar, þótt það hljómi vandræðalaust. Markaðsaðgangur að innri markaði ESB og EES er almennt skilyrtur því að ríki viðurkenni sameiginlegar reglur um markaðssetningu vöru og þjónustu og lúti eftirliti með því að þær séu virtar, eins og raunin er innan EES. Eitt helsta vígorð breskra útgöngusinna hefur verið að ?ná aftur stjórn? (e. Take back control). Það verður ekki einfalt fyrir May að sannfæra þá um ágæti útgöngusamnings sem gerir ráð fyrir að Bretar viðurkenni ESB-reglur á einstökum sviðum (t.d. í fjármálaþjónustu eða sjávarútvegi) og sæti eftirliti ESB eftirlitsaðila með því um ófyrirsjáanlega framtíð.
... en hvað má það kosta?
Stóri óvissuþátturinn er hvernig viðskiptasambandi Breta við Evrópu verður háttað til lengri tíma litið. Sú óvissa er meiri þar sem Bretar hafa ákveðið að sækjast ekki eftir sambærilegum aðgangi að innri markaðnum og Ísland og Noregur njóta á grundvelli EES. Nú þegar er óvissa meðal breskra fyrirtækja í flugi og fjármálaþjónustu um aðgang þeirra að Evrópumarkaði og a.m.k. einhverjar líkur á að þau muni þurfa að flytja höfuðstöðvar sínar til ESB landa eftir Brexit. Flest slík fyrirtæki eru nú þegar byrjuð að teikna upp ýmsar sviðsmyndir, enda óvissan um endanlega niðurstöðu mikil og tíminn fram að útgöngu stuttur.
Michel Barnier, aðalsamningamaður ESB, hefur varað Breta við að menn hafi í reynd ekki lagt niður fyrir sér hvernig það eigi að geta gengið upp að ganga úr ESB og út af innri markaðnum, en halda samt óbreyttu mynstri viðskipta við Evrópu. Hann spurði sem dæmi hvernig menn ætluðu að fara að því að fara út úr því rafræna upplýsingakerfi sem nú gerir 12.000 breskum vöruflutningabílum á dag kleift að fara hindrunarlaust til annarra ESB-ríkja. Svarið við þeirri spurningu hefur gríðarlega þýðingu fyrir þau íslensku fyrirtæki sem landa vöru í Bretlandi og aka til Evrópu.
Þýðingin fyrir Ísland
Brexit mun án efa hafa áhrif á íslenska viðskiptahagsmuni. Við njótum nú þegar fullkomins aðgangs að breskum markaði og þau viðskiptakjör geta því trauðla batnað. Áhrifin geta orðið mjög ólík eftir atvinnugreinum. Í stöðunni eru ýmsar hættur fyrir sjávarútvegsfyrirtæki, en að sama skapi tækifæri fyrir fyrirtæki sem eru í beinni samkeppni við bresk fyrirtæki á Evrópumarkaði. Þá getur innlend ferðaþjónusta og fjármálaþjónusta orðið fyrir neikvæðum áhrifum. Samningar Breta við ESB og sú innlenda löggjöf sem þeir munu taka upp í kjölfarið mun skera úr um þetta.
Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Skoðun

Er tantra einungis um kynlíf?
Rajan Parrikar skrifar

Óverðtryggð húsnæðislán til 25 ára
Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar

Alþjóðlegir straumar í menntamálum: Valdeflum kennara
Kolbrún Þ. Pálsdóttir skrifar

Háskóli á heimsmælikvarða - Silju Báru í rektorinn!
Erlingur Erlingsson skrifar

Velferð og öryggi barna í skólum og í almenningssamgöngum
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Hugleiðingar um virðismat kennara
Bergur Hauksson skrifar

Hvar stendur barnið mitt í námi?
Helga Sigurrós Valgeirsdóttir skrifar

Áslaug Arna er framtíðin
Anton Berg Sævarsson,Birkir Örn Þorsteinsson,Birta Karen Tryggvadóttir,Hulda Dröfn Sveinbjörnsdóttir,Ísak Svavarsson,Lovísa Ólafsdóttir,Páll Orri Pálsson,Þorleifur Hallbjörn Ingólfsson skrifar

Minning fórnarlamba helfararinnar svívirt
Einar Ólafsson skrifar

Minna af þér og meira af öðrum
Heiða Björk Sturludóttir skrifar

Að byggja upp öfluga og flotta leikskóla til framtíðar
Ísabella Markan skrifar

Að koma skriðdreka á Snæfellsnes
Jón Ingi Hákonarson skrifar

Ræstitækni ehf.: Fríríki atvinnurekandans
Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar

Er samfélagslegt stórslys í uppsiglingu?
Davíð Bergmann skrifar

Skiptir hugarfarið máli?
Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar

Við þurfum ekki að hafa alla með okkur í liði
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Verkfærakistan er alltaf opin
Ástþór Ólafsson skrifar

Píratar til forystu
Guðni Freyr Öfjörð skrifar

Beðið fyrir verðbólgu
Halla Gunnarsdóttir skrifar

Minni pólitík, meiri fagmennska
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar

Ný krydd í skuldasúpuna
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Ferðasjóður ÍSÍ hefur rýrnað frá árinu 2019
Heimir Örn Árnason skrifar

Að spila með – Samfélagsmiðla- og tölvuleikjanotkun ungmenna
Berglind Sveinbjörnsdóttir,Þórhildur Halldórsdóttir skrifar

Er Inga Sæland Þjófur?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Kona
Anna Kristjana Helgadóttir skrifar

Bókun 35, 38 og tækifæri fyrir ungt fólk í Brussel
Gunnar H. Garðarsson skrifar

Orð skulu standa
Jón Pétur Zimsen skrifar

Dúabíllinn og kraftur sköpunar
Einar Mikael Sverrisson skrifar

Enginn er betri en þú – enginn er snjallari en þú
Árni Sigurðsson skrifar